„Jólaeyðsla“ í sumar hjá landsmönnum

Innlend kortavelta í júlí síðastliðnum var jafn mikil og í desember“, greinir Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu frá í þættinum 21 í kvöld. „Ef við horfum yfir sumarið þá hefur það bara og ég segi það fullum fetum að það hafi bara gengið vonum framar.

„Þetta bara skýrir það að Íslendingar eru ekki að ferðast í útlöndum og þessi 150 til 200 milljarðar sem við eyðum að jafnaði sem túristar í útlöndum þeir eru að fara inn í íslenskt hagkerfi meira og minna“, segir Andrés.

Í þættinum er rætt um stöðu verslunar og þjónustu innanlands í ljósi Covid.

Andrés rifjar upp að einkaneyslan hafi hrunið í mars en það breyst mikið eftir páskana.

„Þegar þetta hófst í mars, þá varð auðvitað gífurlegur samdráttur, það varð bara hrun í einkaneyslu, verslunarmiðstöðvar lokuðu og margar verslanir með skertan opnunartíma, með þeirri undantekningu að matvöruverslun hélt sínu en heilt yfir getum við sagt að það hafi verið algert hrun í einkaneyslu“

Aðgerðir stjórnvalda segir Andrés hafa skilað miklu.

„Þessar aðgerðir stjónvalda sem hafa vissulega hjálpað til eins og endurgreðsla á virðisaukaskatti vegna vinnu iðnaðarmanna á byggingarstað og endurgreiðslu vegna viðgerða bíla, það hjálpar allt og ýtir undir viðskipti og byggingavöruverslanir og slíka starfsemi“

„Það hefur bara aldrei verið flutt eins mikið inn af pallaefni á Íslandi og í sumar, það var bara slegist um hverja einustu spýtu“.

Eftirspurnin eftir úrræðum stjórnvalda hafa þó verið misjöfn og fólk og fyrirtæki hafi verið hikandi við að nýta sér þau af ýmsum ástæðum. „En ég fullyrði þó að hlutabótaleiðin er tvímælalaust leiðin sem hefur heppnast best við að hjálpa fyrirtækjum að halda ráðningarsambandinu“.

Tilkynnt var í liðinni viku að hlutabótaleiðin yrði framlengd um tvo mánuði. Andrés segir að það sé ásættanleg framlenging og sjá verði hvað verður síðar.

Um hvort hækka eigi atvinnuleysisbætur tímabundið til að örva einkaneyslu segist Andres ekki sannfærður. „Ég held að það sé ekki góð leið að hækka atvinnuleysisbætur, ég er ekki sannfærður um að það sé leiðin sem að hjálpar fólki og ég tek undir með Samtökum atvinnulífsins að það letur fólk til atvinnuleitar“.

En það eru engar sannanir fyrir slíku, bara fullyrðing og hærri bætur geta aukið ráðstöfunarfé?

„Ég veit það en þetta er gífurlega dýrt. En ég segi það bara að ég er ekki sannfærður um það að það muni skila þeim árangri og ég tel að aðrar leiðir muni virka betur“, segir Andrés