Myndarleg jóladagskrá Hringbrautar hefst með aftansöng í Hallgrímskirkju á aðfangadag með hátíðarsöng kl. 18 þar sem við hringjum inn jólin með hátíðlegum brag.
Að kveldi jóladags má sjá heimildarmynd um dáðustu sveit landsmanna, Stuðmenn. Sama kvöld frumsýnum við líka vandaða heimildarmynd um töfra tónskáldsins Sigvalda Kaldalóns í umsjón Jón G. Haukssonar og Friðþjófs Helgasonar.
Einnig er frumsýnd myndin Kaupmaðurinn á horninu á annan í jólum það sem við kynnumst búinu að Klömbrum, Sigmundur Ernir rýnir í sögu þeirra kaupmanna sem höfðu víðtæk áhrif á hið daglega líf landans um áratuga skeið.
Suðurnesjamennirnir okkar verða með sinn hrífandi og lifandi jólaþátt og áramótauppgjör, ljósum skreyttir eins og vanalega.
Í einum þætti eru tekin saman fréttaviðtöl úr þættinum 21 á liðnu ári um dánaraðstoð í umsjón Lindu Blöndal.
Þann 27.des og á nýársdag verður uppgjör ársins ógurlega 2020, með úrvali áhugaverðra viðmælenda í umsjón Lindu Blöndal og Sigmundar Ernis.
Jólajóga verður yfir hátíðarnar, afslöppuð núvitund Þóru Rós jógakennara og fleiri nýir þættir byrja um hátíðarnar, eins og Karlmennskan sem fangar jafnréttismálin með óvenjulegum hætti.
Úrval af því besta með Sir Arnari Eggert og matarveisla með Sjöfn Þórðar er einnig í stóra skónum sem Hringbraut setur í gluggan um hátíðina – í opinni dagskrá, landsmönnum að kostnaðarlausu.
Þetta og margt annað - Gleðileg jól!