Jói Fel er mættur aftur í veitingabransann, eftir að hann hætti rekstri samnefndra bakaría sem fóru í þrot í september 2020. Hann fékk fyrir hjartað á dögunum eins og frægt er orðið.
Hann segist þakklátur fyrir að vera á lífi, í umfjöllun á mbl.is um sinn nýjasta veitingastað, sem ber nafnið Felino og er ítalskur veitingastaður í Listhúsinu Laugardal.
„Mig dreymdi svo alltaf um að opna lítinn veitingastað með ítölsku ívafi og nú hefur sá draumur ræst,” segir Jói.
„Þakklæti er það sem ég upplifi hvað sterkast. Þakklæti til vina minna sem hafa staðið við bakið á mér. Þakklæti fyrir lífið. Ég fékk fyrir hjartað fyrir nokkrum vikum og ef það hefði gerst fjarri mannabyggðum væri ég ekki hér. En hér er ég og er þakklátur fyrir það. Ég er búinn að opna drauma veitingastaðinn minn og ég er svo þakklátur fyrir það,” segir Jói að lokum.