Johnson segir Ís­land ekki lengur kúl staður: „Það fór þegar Peggy frænka steig út úr flug­­vélinni í kvart­buxunum“

Verð­launa­blaða­maðurinn Tim John­son birtir á­fellis­dóm um Ís­land á Daily Beast en John­son hefur í starfi sínu ferðast til 138 landa og unnið til fjölda verð­launa.

Í nýjasta pistli sínum rifjar hann upp að fyrir ekki svo löngu hafi Ís­land verið framandi og hálf furðu­­legur staður til að sækja heim. „Þegar maður sagði vinum sínum hvert maður væri að fara hristu þeir hausinn og spurðu: „Ertu að fara HVERT?““

Í dag sé öldin aftur á móti önnur og í dag hafi nánast allir farið til Ís­lands. Þetta eigi til dæmis við um sumarið sem er að líða; mið­bær Reykja­víkur hafi verið stút­fullur af er­­lendum ferða­­mönnum sem borguðu fúlgur fjár til að komast í Bláa lónið og morð­fjár fyrir stutt leigu­bíla­skutl.

„Og frænka þín, þessi sem er alltaf í kvart­buxum? Hún er pott­þétt í ein­hverri rútu­­ferð á Ís­landi núna,“ segir hann.

Tim segir í grein sinni að ekki megi mis­skilja hann. Ís­land sé virki­­lega nota­­legur á­­fanga­­staður fyrir ferða­­menn.

„Ef þú hefur ekki farið til Ís­lands, ættirðu lík­­lega að fara,“ segir hann og nefnir eld­fjöllin og náttúru­laugarnar máli sínu til stuðnings. „Málið er bara það að Ís­land er ekki svalt lengur. Það fór þegar Peggy frænka steig út úr flug­­vélinni í kvart­buxunum,“ segir hann og vill meina að annar staður hafi tekið við keflinu af Ís­landi sem svalasti ferða­manna­­staðurinn: Græn­land.

Tim heim­­sótti Græn­land í sumar og hreifst mjög af landinu eins og lesa má nánar um í grein hans á vef Daily Beast.