John Snorri komst víst á toppinn

John Snorri Sigur­jóns­son komst á topp K2. Þetta stað­festa leitar­menn sem fundu lík hans og Ali Sadpara fyrir ofan flösku­hálsinn á fjallinu.

Frá þessu er greint á minningar­reikningi Sadpara á Twitter. Líkin af John Snorra og Ali fu­undust rétt fyrir ofan flösku­hálsinn svo­kallaða.

Um er að ræða síðasta á­fanga göngu­manna að toppnum. Á búnaði mannanna sést að þeir voru á leið niður að sögn leitar­manna. Virðist vera sem þeir hafi lent í stormi á leið sinni niður og króknað úr kulda.

Sjá einnig: Fjöl­skylda John Snorra sendir frá sér yfir­lýsingu og þakkar hlý­huginn og stuðninginn