John C­leese rifjar upp Kaup­þings­aug­lýsinguna frægu: „Ég hef stór­lega van­metið í­búa­fjölda Ís­lands!“

Hugur breska stór­leikarans John C­leese virðist nú vera hjá ís­lensku þjóðinni, ef marka má nýjustu færslu hans á Twitter, en hann rifjar þar upp aug­lýsingu sem hann gerði fyrir Kaup­þing þegar bankinn breytti nafni sínu úr KB-banki ára­mótin 2006/2007.

„Ég hef stór­lega van­metið í­búa­fjölda Ís­lands! 300 þúsund milljónir?!“ skrifar leikarinn í færslunni og birtir með mynd­band úr téðri aug­lýsingu. Þar sést hann standandi í eld­húsi við það að hella sér upp á kaffi þegar hann spyr hversu margar milljónir búa á Ís­landi.

„Þrjú hundruð þúsund,“ heyrist kallað úr mynd sem fær C­leese til að gapa og spyrja; „Þrjú hundruð þúsund milljónir?!“
Því næst spyr hann hversu mörg fyrir­tæki séu á Ís­landi og fær þau svör að þúsundir fyrir­tækja sé að finna hér á landi. „Ja­hérna, kannski allir á Ís­landi eigi fyrir­tæki.“

„Ef í­búar Ís­lands eru að­eins þrjú hundruð þúsund, af hverju eruð þið þá yfir­höfuð að búa til aug­lýsingar? Hvers vegna hringið þið ekki bara í alla?“ segir Cleese síðan í lok auglýsingarinnar.

Ýmis vötn hafa runnið til sjávar á þeim rúmlega fjórtán árum frá því að auglýsingin var frumsýnd og vafalaust eru fleiri meðvitaðir um stöðu Íslands. Fleiri auglýsingar sem Cleese gerði með Kaupþingi má finna hér fyrir neðan.