Jóhanni Helga brugðið: „Þetta er mjög skuggalegt“

„Þegar maður sér svona skilaboð hér fyrir norðan þá bregður manni í brún. Þetta er mjög skuggalegt,“ segir Jóhann Helgi Heiðdal sem starfar hjá hug- og félagsvísindasviði Háskólans á Akureyri í samtali við Fréttablaðið í dag.

Miðar sem hampa yfirburðum hins hvíta norræna manns og taka afstöðu gegn samkynhneigð hafa undanfarið verið límdir upp á fleiri en einum stað á Norðurlandi. Á sumum miðanna má meðal annars sjá merki samnorrænnar nýnasistahreyfingar á Norðurlöndunum, en í Fréttablaðinu kemur fram að vísað sé til samtaka sem hófu starfsemi sína í Svíþjóð en hafa dreift sér um öll Norðurlöndin.

Jóhann segir að sumir stjórnmálamenn hér á landi hafi kynt undir andúð og hatri á útlendingum og það búi til jarðveg fyrir upplausnarástand og kyndi undir starfsemi svona hreyfingar.

„Það er búið að normalísera neikvæða umræðu um útlendinga,“ segir Jóhann og brýnir stjórnmálamenn til að tala með ábyrgum hætti um útlendinga á opinberum vettvangi.

Norðurvígi er að sögn Eyrúnar Eyþórsdóttur, sérfræðings í hatursglæpum og lektors í lögreglufræði við Háskólann á Akureyri, hluti samnorrænnar nýnasistahreyfingar þar sem talað fyrir uppgangi hvíta kynstofnsins.

Nánar í Fréttablaðinu í dag.