Jóhannes Ásbjörnsson, athafnamaður og fyrrverandi fjölmiðlamaður, veiktist illa af COVID-19 fyrir jólin, svo illa að hann var fluttur með sjúkrabíl á Landspítalann með hraði.
Þetta kemur fram í viðtali við hann í Einkalífinu á Vísi.
Það var í byrjun desember sem Jóhannes fór að finna fyrir einkennum eftir að konan hans veiktist. Hún varð nokkuð veik í fjóra til fimm daga en var tiltölulega fljót að ná sér. Eins og hún varð Jóhannes mjög slappur fyrstu dagana en taldi sig vera orðinn góðan strax á sjöunda degi. Það reyndist ekki alveg sannleikanum samkvæmt.
Jóhannes og eiginkona hans ákváðu að taka rækilega til í geymslunni og virðist Jóhannes hreinlega hafa ofkeyrt sig.
„Eina nóttina vaknar frúin við það að hún heyrir bara eitthvað þvaður í mér niðri í skrifstofuherberginu og þá var ég bara með óráði. Hún hringdi á Covid-deildina og þeir mættu bara með blikkandi ljós og sóttu karlinn og brunuðu með mig niður eftir,“ segir Jóhannes sem var í einangrun í sléttar þrjár vikur og rétt náði að losna úr henni áður en jólin gengu í garð.
Eins og dæmin hafa sýnt getur COVID-19 tekið mikinn toll af fólki og hefur Jóhannes hægt og bítandi verið að vinna upp þrek.