„Þetta er vitskert veröld,“ segir Jóhannes Björn Lúðvíksson, samfélagsrýnir og höfundur bókarinnar Falið vald, í pistli á Facebook-síðu sinni.
Þar gerir Jóhannes nýlega frétt CNN að umtalsefni þar sem fram kom að aðeins 39% Bandaríkjamanna, tvö hundruð milljónir manna, geti ekki greitt óvæntan þúsund dollara reikning án þess að slá lán eða selja eitthvað.
„Fleiri en 110.000 veitingahús í Bandaríkjunum eru komin á hausinn. Tugmilljónir einstaklinga standa frammi fyrir að missa húsnæðið og lenda á götunni þegar greiðslufrestur leigu- og fasteignalána vegna Covid-19 rennur út,“ segir Jóhannes en tölurnar sem CNN birti voru úr árlegri skýrslu Bankrate sem veitir einstaklingum meðal annars fjármálaráðgjöf.
Jóhannes segir að á sama tíma og þetta gerist séu ríkustu einstaklingar Bandaríkjanna að moka inn peningum. „Milljarðamæringar Bandaríkjanna hafa bætt hressilega við auð sinn síðan Covid hófst (yfir þúsund milljörðum dollara) og 655 auðmenn luma orðið á fjórum trilljónum dollara (evrópskar billjónir),“ segir hann en breska blaðið Guardian fjallaði meðal annars um þetta í desember síðastliðnum.
„Svona uppákoma endar alltaf með miklum samdrætti, því milljarðamæringar sem græða meira en venjulega auka ekki persónulega neyslu sína og örva þannig hagkerfið. Þeir eiga nú þegar allt til alls. Fjármagnið streymir hins vegar úr vösum almennings sem verður að draga saman seglin. Fordæmalaus peningaframleiðsla í formi skulda, sem hefur staðið síðan allt hrundi 2008, getur ekki endalaust haldið áfram þessum villta dansi. Fjármálasaga síðustu 2000 ára hefur sýnt okkur í ótal skipti hvað gerist þegar breyskir menn halda að þeir hafi fundið upp eilífðarvélina.“
Jóhannes skrifaði pistil á dögunum sem vakti talsverða athygli, en í honum spáði hann hruni á verðbréfamörkuðum heimsins á þessu ári. Nánar hér.