„Mér finnst skrýtið að ef veikindaréttur er fyrir hendi og þú ert 66 ára gamall og lendir í langvarandi veikindum og færð að vera á spítala þá sé dvölin frí. Ef þú ert 67 ára með góðar tekjur þá er dvölin frí. En ef þú ert 67 ára eins og ég, með lífeyri, sem tekjulágur þá þarftu að borga fyrir sjúkrahúsvistina, því þá ertu sviptur þessum tekjum.“
Þetta segir Jóhannes Sigurjónsson, blaðamaður frá Húsavík, í athyglisverðu viðtali í Fréttablaðinu í dag. Þar er greint frá því að tekjulágir einstaklingar sem dvelja meira en 180 daga á sjúkrahúsi geti átt von á sviptingu lífeyris fyrir utan vasafé.
Jóhannes hefur þurft að dvelja á Sjúkrahúsinu á Akureyri í rúmlega hálft ár vegna veikinda sinna. Hann lenti sjálfur í skerðingu lífeyrisgreiðslna frá Tryggingastofnun ríkisins, en litið er þannig á að hann hafi misst rétt sinn til ellilífeyris með sjúkrahúsdvölinni.
Áður en hann lenti á sjúkrahúsi fékk hann um 220 þúsund krónur útborgað úr lífeyrissjóði og frá Tryggingastofnun. „Sjúkrahúsið ætlar nú að taka af mér hundrað og sjötíu þúsund krónur. Það fara fjörutíu þúsund hjá mér í húsnæði úti í bæ. Þá á ég eftir tíuþúsundkall á mánuði.“
Nánar er fjallað um málið í Fréttablaðinu og meðal annars rætt við systur Jóhannesar, Guðrúnu Sigurjónsdóttur, sem hefur barist fyrir bróður sinn ásamt fleirum í fjölskyldunni.