„Ég er búinn að vera starfandi við meindýravarnir í 34 ár og þetta er næstmesti músagangur sem ég hef séð,“ segir Jóhannes Þór Ólafsson, meindýraeyðir og eigandi Meindýravarna Suðurlands, í Fréttablaðinu í dag.
Mikill músagangur hefur verið í híbýlum manna hér á landi að undanförnu en ástæðan er sú að veðurfar fram eftir hausti var hagstætt en svo kólnaði harkalega nýlega.
Fréttablaðið kveðst hafa fengið fjölda ábendinga um mikinn músagang í húsum um allt land og virðist það eiga við rök að styðjast, ef marka má orð Jóhannesar.
„Þetta er hálfgert vandamál. Þær sækja mikið í hús því þær vantar hlýju og mat,“ segir Jóhannes.
Þá er rætt við Ester Rut Unnsteinsdóttur, spendýrafræðing hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, sem tekur undr með Jóhannesi um að ástæðuna megi rekja til hagstæðra veðurskilyrða í haust og svo snöggrar kólnunar síðustu viku.
„Hagamýs tímgast bara yfir sumartímann og við hagstæð veðurskilyrði verður stofninn stór,“ segir Ester. „Svo þegar það fer að vetra svona harkalega þá verður fólk meira vart við að þær leiti inn í skjól,“ bætir hún við.
Nánar er fjallað um málið í Fréttablaðinu.
Mynd/Guðmundur Karl Sigurdórsson