„Það er einfaldlega bullrökfærsla að halda því fram að fjöldi ferðamanna muni falsa vottorð,“ segir Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.
Óhætt er að segja að fjörugar umræður hafi farið fram undir færslu Björns Inga Hrafnssonar, ritstjóra Viljans og höfundar bókarinnar Vörn gegn veiru, sem birtist á Facebook-síðu hans í gær.
Í færslu sinni sagðist hann alls ekki vilja vera með leiðindi og hafi fullan skilning á því að hjól atvinnulífsins þurfi að snúast á ný. Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir hefði þó margsagt að mikið væri um fölsuð vottorð hjá farþegum á landamærum um mótefni og bólusetningar.
„Nú þegar allir farþegar með slík skírteini komast til landsins án skimunar og sóttkvíar stóraukast vitaskuld líkurnar á að breska afbrigðið eða það Suður-afríska komist til landsins í vor eða sumar, valdi fjórðu bylgjunni og öllu verði í kjölfarið skellt í lás. Aðeins lítill hluti íslensku þjóðarinnar hefur verið bólusettur og þetta er þess vegna klár áhætta. Vonandi kemur þetta ekki í bakið á okkur,“ sagði Björn Ingi.
Margir tóku undir með honum en í hópi þeirra sem mótmæltu þessu var Jóhannes Þór.
„Ferðamaður sem er að fara í frí með fjölskylduna og hefur fjárfest í því hundruð þúsunda hefur engan jákvæðan hvata til að framvísa fölsuðu vottorði. Það er bara áhætta fyrir ferðamanninn að gera slíkt, áhætta á að tapa bæði peningunum og fríi fjölskyldunnar,“ segir hann og bætir við að fólk sem ferðast milli landa til að vinna hafi hins vegar efnahagslega jákvæðan hvata til að komast í gegnum landamæri með falsað vottorð.
„Hér getur hver einasti maður spurt sjálfan sig hvort hann eða hún myndu taka sénsinn á því að vera gripin með falsað vottorð á erlendum flugvelli með fullar ferðatöskur og tæpa milljón í greiddum fargjöldum og hótelum í húfi. Það er einfaldlega bullrökfærsla að halda því fram að fjöldi ferðamanna muni falsa vottorð.“
Jóhannes bætir svo við í annarri athugasemd að ef menn vilji ekki hlusta á hann þá geti þeir hlustað á Þórólf sjálfan á upplýsingafundi almannavarna í morgun.
„Þar sagði hann m.a. að það að taka vottorð gild væri nokkuð góð vörn. Hann telji það skynsamlega nálgun að taka gild vottorð um fyrri veikindi og bólusetningar og að það sé einnig skynsamlegt að taka slík vottorð gild ekki bara frá EES löndum heldur líka löndum utan EES. Áhyggjur hans af móttöku vottorða frá löndum utan Schengen snúist aðallega að því að ef mikill fjöldi gæti valdið vandræðum í afgreiðslu. Þannig er nú það.“
Ég vil alls ekki vera með nein leiðindi og skil vel að hjól atvinnulífsins þurfi að snúast á ný, en Þórólfur...
Posted by Björn Ingi Hrafnsson on Miðvikudagur, 17. mars 2021