„Dreifbýlið kemur sterkt út á ýmsum sviðum, sem kemur mér ekki á óvart,“ segir Jóhannes Geir Sigurgeirsson, fyrrverandi alþingismaður og núverandi ferðaþjónustubóndi í Eyjafjarðarsveit, í samtali við Morgunblaðið í dag.
Þar er fjallað um niðurstöður viðhorfskönnunar frá því í haust á vegum landshlutasamtaka sveitarfélaga og Byggðastofnunar um hvar á landinu er best að búa. Könnunin var nokkuð umfangsmikil, rúmlega 10.300 einstaklingar voru spurðir álits um ýmis atriði, og voru niðurstöðurnar á þá leið að best sé að búa í Vestmannaeyjum, á Akureyri og í Eyjafjarðarsveit. Höfuðborgarsvæðið var í fimmta sæti könnunarinnar.
Jóhannes Geir, sem er ferðaþjónustubóndi á Öngulsstöðum, segir að niðurstöðurnar komi honum ekki á óvart. Það sé nefnilega býsna gott að búa í Eyjafirði.
„Að búa í sveitinni felur svo í sér frelsi, friðsæld, öryggi, heilnæmt umhverfi auk þess sem hér í sveit eru góðir skólar og öflug félagsleg þjónusta. Þetta eru allt þættir sem vógu þungt í afstöðu fólks í búsetukönnuninni.“
Jóhannes segir að hugsanlega hafi Eyfirðingar til að bera eðlislæga hógværð og nægjusemi sem kann að ráða því hvað íbúar eru sáttir við sitt.
„Að félagslegt öryggi sé til staðar og efnamunur fólks hóflegur veit á gott. Könnunin sýnir líka að höfuðborgarsvæðið er ekki endilega sú paradís eða sælustaður sem margir vilja vera láta.“
Fjölmörg atriði voru lögð til grundvallar útreikningunum, til dæmis atvinnuöryggi, vegakerfi, vöruverð, þjónustu af ýmsu tagi og almenningssamgöngur.