Jóhannes Haukur sakar leigufélagið Ölmu um „lítið dulbúna hótun“ - „Þið fyrirgefið. Mér er bara misboðið“

Leikarinn ástsæli Jóhannes Haukur Jóhannesson fer ekki fögrum orðum um leigufélagið Ölmu í nokkrum færslum sem hann birtir á Twitter.

Í dag birtist í Fréttablaðinu aðsend grein frá Gunnari Þór Gísla­syni for­manni stjórnar Ölmu leigu­fé­lags. Þar sagði hann græðgi ekki hafa neitt með hækkanir á leigu­verði að gera.

Jóhannes tekur ekki mikið mark á þessari grein Gunnars, sem hægt er að lesa hér, og segir að í henni finnist fjölmörg „rauð flögg“ (e. red flags)

„Það eru svo mörg red flags í þessu orðagljáfri. Það er ekki beðist afsökunar á 30% hækkun heldur á því hvernig þessari konu var tilkynnt um hana. Eins og það skipti einhverju helvítis máli. Höggið er alltaf þessi 30% hækkun. Innpökkuð í bómull eða ekki.“ segir Jóhannes.

„Fyrsta draftið af þessari tilkynningu hefur sennilega verið: „Fokkið ykkur!“ „Raunverð hækkar ekki“ ÞAÐ HÆKKAR SAMT!! Krónutala skiptir máli hjá fólki sem ekki fær margar krónur hver mánaðamót.“ bætir hann við og segir: „Burtséð frá því hvort þetta sé að fylgja einhverri helvítis vísitölu.“

Jóhannes heldur áfram að láta félagið heyra það og heldur því fram að þessi grein Gunnars sé í einhverjum skilningi hótun.

„Og hvað er „Eðlileg framlegð af rekstrinum“ Það kemur ekki fram er það? ER ÞAÐ!?!?! Nei. Og „Auka sveigjanleika þeirra sem vilja fara annað.“ VILJA!!? Heldurðu að fólk sé að VELJA það að eiga í viðskiptum við ykkur??!!! Þetta er bara lítið dulbúin hótun.“ segir Jóhannes

Hann endar síðan færslur sínar á þessum orðum: „Þið fyrirgefið. Mér er bara misboðið.“