Jóhannes Haukur fussar og sveiar: „Er ég bara einhver hálfviti ef ég segi Harpan?“

Tónlistarhúsið Harpa hefur gert mikið upp úr því í dag, sem og fyrri Daga íslenskrar tungu, að kenna landsmönnum að nafn hússins sé Harpa og almenningur eigi ekki að tala um Hörpuna eða nota nafnið með greini.

Stórleikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson er alls ekki sáttur við þetta:

„Og hvað? Er ég bara einhver hálfviti ef ég segi Harpan?,“ spyr hann og heldur áfram: „Finnst þetta bara alls ekki sambærilegt við að setja greini á mannanöfn.“

Jóhannes Haukur fussar og sveiar yfir þessu á Twitter: „Menntasnobb og yfirlæti. Kann ekki við þetta. Bara alls ekki. Svona fer þveröfugt í mig. Fussumsvei. Annars góður.“