Jóhannes Haukur fékk vafasama sendingu frá vini sínum

Leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson er án efa einn af okkar vinsælustu leikurum um þessar mundir. Hann var gestur útvarpsmannsins Gústa B. á FM957 þar sem hann sagði áhugaverða sögu.

Jóhannes fór með eitt af burðarhlutverkunum í spennutryllinum Svartur á leik en í myndinni er meðal annars klippa sem sýnir hann í kynferðislegum athöfnum. Umrætt myndbrot rataði inn á þýska klámsíðu og fékk Jóhannes vitneskju um það frá vini sínum.

„Það litla myndbrot rataði inn á einhverja þýska hommaklámsíðu. Einn félagi minn sem hneigist í þá áttina varð var við þetta þegar hann var á sínu surfi um netið að leita sér að efni,“ sagði Jóhannes Haukur í þættinum en fjallað var um þetta á vef Vísis.

Jóhannes Haukur segir að tilfinningarnar sem bærðust um í brjósti hans hafi verið blendnar. „Mér fannst svona brotið á mér en ég var líka svona flattered sko,“ sagði hann.