Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar og fyrrverandi aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, hefur opnað sig um tvíkynhneigð sína. Hann segir í viðtali við Gay Iceland að hann hafi komið úr skápnum fyrir þremur árum. Viðbrögðin voru mismunandi, hafði móðir Jóhannesar áhyggjur af vinnu hans.
Jóhannes, sem er kvæntur konu, segir að hann vonist til þess að saga hans hjálpi öðrum mönnum til þess að vera stoltir tvíkynhneigðir menn. „Við vitum að það eru tvíkynhneigðir menn þarna úti,“ segir hann.
Hann telur auðveldara fyrir gagnkynhneigða menn að setja sig í spor kvenna sem heillast að öðrum konum en karla sem laðast að öðrum karlmönnum. Átti hann erfitt með að átta sig:
Frá því ég var 19 eða 20 ára, í gegnum háskóla og svo áfram... Það tók mig næstum því tíu ár að átta mig, bara að skilja hvað tvíkynhneigð væri. Er ég gagnkynhneigður maður sem er bara líka hrifinn af öðrum mönnum, eða? Hvað þýðir tvíkynhneigð? Er það annað hvort eða?“