Jóhannes Birgir Guðvarðsson, einn af okkar allra bestu fuglaljósmyndurum, varð fyrir því óláni um helgina að týna rafmagnsreiðhjóli sínu sem kostar nýtt um 400 þúsund krónur.
Jóhannes glímir við flogaveiki og síðastliðinn laugardag gerðu veikindin vart við sig ef svo má segja. Hann hjólaði að Vífilsstaðavatni um morguninn en eftir hádegi, milli klukkan 14:30 og 15:00, datt hann út áður en hann kom að Kringlunni.
Jóhannes á það til að detta út annað slagið þegar hann fær flog og upplifir hann þá tímabundið minnisleysi á meðan undirmeðvitundin er í lagi.
Jóhannes segir að hann hafi skilið hjólið einhvers staðar eftir, en hann rankaði við sér um klukkan 15:40 þegar hann var á gangi við Skeifuna. Hélt hann á hjálminum sínum en hjólið var hvergi sjáanlegt.
Samkvæmt skrefamæli á úri Jóhannesar hafði hann gengið töluverða vegalengd, en hjólið var þó hvergi sjáanlegt þegar hann fór út að leita um helgina.
Þetta er afar óheppilegt fyrir Jóhannes enda keyrir hann ekki bíl og fer nær allra sinna ferða á hjóli. Myndin sem fylgir þessari frétt er af hjóli Jóhannesar en það kostar nýtt um 400 þúsund krónur. Þeir sem hafa séð hjólið eða vita hvar það er niðurkomið mega gjarnan hafa samband við hann.