Jóhannes: „Ekki hlýða Víði“

Jóhannes Loftsson, formaður Frjálshyggjufélagsins, segir að sú ákvörðun íslenskra yfirvalda að bólusetja börn gegn Covid-19 eigi eftir að verða komandi kynslóðum ráðgáta.

Jóhannes hefur verið áberandi undanfarin misseri í gagnrýni sinni gegn sóttvarnaraðgerðum yfirvalda í kórónuveirufaraldrinum. Bólusetningar barna hefjast af fullum krafti í Laugardalshöll í dag. Grein Jóhannesar í Morgunblaðinu í dag ber yfirskriftina: Ekki hlýða Víði.

„Mig lang­ar bjóða ykk­ur í stutt tíma­ferðalag. Dag­ur­inn er 31. janú­ar 2022, dag­ur­inn sem átti að gefa ís­lensk­um börn­um skammt­inn af Pfizer. En það er eng­inn að fara að mæta því það er fyr­ir löngu búið að hætta við seinni spraut­una, þar sem komið er hjarðónæmi. Opn­un skóla og vinnustaða eft­ir jól sendi hið milda ómíkronkvef á flug og þar sem bar­áttu­vilji land­ans við að loka sig leng­ur inni var löngu horf­inn varð hjarðónæmið óumflýj­an­legt. Smit­bylgj­an náði há­marki í miðjum janú­ar en svo hurfu smitin smám sam­an. Sam­bæri­leg þróun átti sér stað um all­an heim,“ segir Jóhannes í grein sinni.

Hann segir að ekki sé um neina völvuspá að ræða því vísbendingar bendi til þess að kófinu sé að ljúka.

„Ómíkron er svo smit­andi að vírus­inn er óstöðvandi. Frek­ari frels­is­skerðing­ar munu litlu breyta og stríðið er tapað. En þó ekki í raun, því stríðið fyr­ir eðli­legu lífi er að vinn­ast. Hið milda ómíkronkvef býr til svo góða vörn gegn deltal­ungna­bólg­unni að hún er að hverfa. Fyr­ir eld­heita bólu­setn­ing­arsinna má kalla þetta „bólu­efni sem virk­ar“ til að aðskilja það frá til­rauna­bólu­efn­un­um sem virka ekk­ert á Ómíkron sam­kvæmt nýj­ustu töl­fræðiupp­lýs­ing­um á covid.is.“

Jóhannes segir að sumar þjóðir hafi þegar áttað sig á þessu, til dæmis í Suður-Afríku og Ástralíu sé menn hættir og farnir að bíða eftir ómíkronhjarðónæminu. „Óumflýj­an­legt er að fleiri fylgi eft­ir, því svo ört fjölg­ar smit­um um all­an heim.“

Jóhannes segir að börn séu í hverfandi hættu af covid og enn minni hættu af ómíkron.

„Til­rauna­lyfið sem þau verða sprautuð með verður hins veg­ar á til­rauna­stigi fram til 2026. Börn sem eru sprautuð á mánu­dag­inn munu svo ekki verða „full­bólu­sett“ fyrr en 14 dög­um eft­ir seinni bólu­setn­ingu, eða 14. fe­brú­ar. Lík­legt verður að telja að þá verði síðasta eft­ir­lif­andi af­brigði sem til­rauna­bólu­setn­ing­in hef­ur virkni gegn, deltal­ungna­bólg­an, löngu horf­in. Til­raun­in virðist því al­gjör­lega til­gangs­laus. Skaði barn­anna get­ur hins veg­ar orðið margs kon­ar,“ segir Jóhannes og beinir orðum sínum að foreldrum:

„Mundu að ef þú ert for­eldri barns sem verður fyr­ir skaða fell­ur það í þinn hlut að út­skýra þenn­an gjörn­ing fyr­ir barn­inu. Þá verður lé­leg af­sök­un að segj­ast bara hafa verið að hlýða Víði.“

Þess má geta að Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur sagt það algengara að börn fái aukaverkanir af því að smitast af Covid-19 en af bólusetningu gegn veirunni. Þó það sé sjaldgæft að börn verði alvarlega veik af sjúkdómnum verði að hafa í huga að 0,6% barna sem smitist þurfi á innlögn að halda.