Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, hefur ákveðið að bjóða sig fram til stjórnar Samtakanna 78. Kosið verður til stjórnar 10 mars.
Hann greinir sjálfur frá framboði sínu á Facebook og hefur fengið mikinn stuðning við framboð sitt. Jóhannes kom út úr skápnum sem tvíkynhneigður maður fyrir fjórum árum síðan.
„Bakslagið gagnvart hinsegin fólki að undanförnu hefur vakið hjá mér brennandi þörf fyrir að leggja mitt af mörkum til að styrkja það mikilvæga og fjölbreytta starf sem Samtökin sinna í samfélaginu,“ skrifar Jóhannes á Facebook sem hefur fengið mikinn stuðning við framboð sitt.
Í framboðstilkyningu á vef samtakanna segir Jóhannes að hann vilji búa til betri samfélag fyrir börn sín.
„Ég kom seint út og hef ekki tekið mikinn virkan þátt í viðburðum eða öðru starfi Samtakanna ‘78. Bakslagið og sú neikvæða umræða sem á sér stað í samfélaginu núna hefur hins vegar vakið hjá mér brennandi þörf fyrir að verða að liði. Ef það er eitthvað sem drífur mig áfram meira en nokkuð annað þá er það að geta lagt lóð á vogarskálarnar til að búa til betra samfélag fyrir börnin mín, þó ekki væri nema að litlu leyti,“ skrifar Jóhannes.
Hann segist einnig vera „óttalegur nölli“ um allskonar hluti og veit „veit fátt betra en að sökkva mér ofan í góða bók í friði og ró, helst með malandi kött í fanginu.“
„Ég gekk í fyrsta sinn í gleðigöngunni í fyrra með alla fjölskylduna með mér, eftir að hafa fylgst með af hliðarlínunni árum saman. Það er minning sem ég mun lifa á ótrúlega lengi, upplifun sem mér þykir alveg ólýsanlega vænt um og sem keyrði beint inn í hjartað hvað ég hef mikla þörf fyrir að leggja meira af mörkum fyrir hinsegin samfélagið, samfélagið mitt.“
„Þótt störf mín hafi ítrekað otað mér í fjölmiðla að ræða misskemmtilega hluti er ég minna leiðinlegur en margir halda, almennt viðræðugóður og hef gaman af að kynnast nýju fólki,“ segir Jóhannes einnig.
Vinir Jóhannesar á Facebook virðast mjög ánægðir með framboðið og segir ein: „Þau heppin að fá þig til liðs við sig.“ .. „Frábær og geggjaður liðsauki sem þau fengju í þér fáir þú kosninga,“ segir önnur.
Hægt er lesa framboðstilkynningu Jóhannesar hér.