Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, er yfir sig hissa á því hvernig samskiptamálum Reykjavíkurborgar við borgarana er háttað.
Jóhannes skrifar athyglisverða færslu á Facebook þar sem hann greinir frá því að nýlega hafi honum borist fjögur pappírsbréf frá byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar þar sem honum er tilkynnt um afgreiðslu máls.
„Í öllum tilfellum er tilkynnt að málinu sé frestað. Til þess þykir borgarkerfinu nauðsynlegt að senda mér sérstakt bréf á pappír í hvert sinn, undirritað og smeygt í umslag sem svo er póstsent til mín á skrifstofuna. Í hverju umslagi eru tvö A4 blöð. Öll bréfin tiltaka að afrit sé sent á fjóra aðra aðila. Póstberinn hefur því undanfarnar vikur borið heil tuttugu pappírsbréf (40 A4 síður af pappír) í Hús atvinnulífsins til að tilkynna að byggingarfulltrúi hafi frestað máli sem hann hefur með höndum. Þetta þykir mér hreint súrrandi galið mál,“ segir hann.
Hann segist með engu móti geta skilið hvernig þetta „snarúrelta verklag“ í samskiptum kerfis og borgara sé enn til staðar. Bendir hann á að ökuskírteini hans sé komið inn í 21. Öldina og jafnvel umboðsmaður Alþingis sé hættur að nota ritvél. Þá séu mörg ár liðin síðan Rafrænni Reykjavík var ætla að ryðja braut í rafrænni stjórnsýslu.
„Fékk byggingarfulltrúi borgarinnar ekki memóið? Miðað við fjölda bréfa sem þarf að skrifa, prenta út, undirrita, sleikja ofan í umslag og póstleggja í þessu eina máli hlýtur að vera starfsmaður í fullu starfi við að senda út bréf um ákvarðanir byggingarfulltrúa. Það hlýtur að vera fljótlegt og einfalt fyrir borg sem hefur fyrir löngu sett sér stefnur um umhverfi og rafræn samskipti að kippa þessu snarlega í liðinn. barasta nó problem. Væri það ekki bara gott mál í jákvæða kladdann fyrir árið 2020?“