Jóhanna varð vitni að kraftaverki á dögunum: Vinir ungrar konu söfnuðu fyrir ómetanlegri jólagjöf

Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, bakþankahöfundur Fréttablaðsins, segir að ársins 2021 verði minnst fyrir að hafa verið stórmerkilegt og stórskrýtið ár. Í hennar huga verður þess einnig minnst fyrir ákveðið kraftaverk sem átti sér stað núna í desember.

„Í dag er vika eftir af stórmerkilegu og stórskrýtnu ári. Ári sem við höfum eytt í einangrun, sóttkví, samkomutakmörkunum, með grímur, að horfa á eldgos eða bíða eftir næsta skjálfta, ýmist í eins eða tveggja metra fjarlægð frá næsta manni,“ segir hún og nefnir fleiri dæmi, til dæmis þegar milljarðamæringar kepptust um geimferðir og Britney var frelsuð.

„Ég ætla að minnast desember sem mánaðarins þegar vinir ungrar konu, sem nýverið greindist með alvarlegan hrörnunarsjúkdóm, lýðvirkjuðu kærleikann. Facebook var notað til góðra verka og með séríslenskum samtakamætti var safnað í jólagjöf – svo konan gæti ferðast og búið til góðar minningar með dætrum sínum á meðan heilsan leyfir,“ segir Jóhanna og heldur áfram:

„Þetta gerir mig meyra og óendanlega stolta af samferðafólkinu í lífinu. Við erum sérfræðingar í átaksverkefnum, spretthlaup eru okkar fag. Við semjum lög um að hlýða Víði og birgjum okkur upp af dósamat við fyrstu samkomutakmarkanir. Við getum staðið saman, erum þrautgóð á raunastund, þrjósk þegar þess þarf, útsjónarsöm þegar flest sund virðast lokuð. Nú þurfum við að æfa langhlaupið. Klára endasprettinn saman. Kraftaverkin gerast nefnilega í desember, með rísandi sól, minningum um þau sem eru farin, ást og kærleika til fólksins okkar, sörum og hangikjöti. Gleðileg jól.“