Jóhanna og Bjarni vilja selja áfengi á hárgreiðslustofu

„Við höfum skoðað hárgreiðslustofur víða um lönd og þar er allt í lagi að fá sér einn bjór, eitt rauðvínsglas eða jafnvel hvítvínstár, meðan það er setið í hárgreiðslustólnum. Planið er ekki að hafa hér bjór á dælu og kokteilagerð. Alls ekki. Bara lítinn kæli fyrir vín og bjór.“

Þetta segir Jóhanna María Gunnarsdóttir sem hefur, ásamt eiginmanni sínum, Bjarna Líndal Snorrasyni, sótt um vínveitingaleyfi fyrir hárgreiðslustofu þeirra, Unique hár og spa, í Síðumúla.

Fréttablaðið ræðir við Jóhönnu og Bjarna í dag en þar kemur fram að þetta sé eitthvað sem þau hjónin hafa gengið með í maganum í mörg ár.

„Það merkilega er að við þurfum að sækja um sem kaffihús, því kerfið gerir ekki ráð fyrir að hárgreiðslustofa sé í þessum hugleiðingum,“ segir Bjarni.

Í frétt Fréttablaðsins er bent á að til að þetta verði að veruleika þurfi hjónin að breyta stofunni ásamt arkitektum þannig að hún uppfylli alla staðla fyrir kaffihús.

„Menningin hér á Íslandi er búin að breytast mikið á undanförnum árum. Þetta er ekkert eins og við vorum að sjá í Verbúðinni, þegar allt tal um áfengi var að Íslendingar kynnu ekki að drekka. Það var 1989,“ segja þau í Fréttablaðinu.

Hér má lesa meira um málið.