Jóhann Sigmarsson, formaður Landsflokksins, vill að skoðað verði hvort gerlegt sé að setja a ný lög sem kveða á um að þeir sem hafa framið alvarlega glæpi hér á landi verði sendir úr landi í fangelsi til lengri tíma.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í grein Jóhanns á vef Vísis. Fangelsismál eru Jóhanni hugleikin enda hefur hann sjálfur setið inni, að því er fram kemur í grein hans.
Í greininni fer Jóhann yfir stefnumál Landsflokksins í fangelsismálum og ekki verður betur séð en að flokkurinn vilji stokka verulega upp í þessum málaflokki. Hann bendir á að kostnaður við hvern fanga hér á landi sé staðlaður við 10 milljónir króna á ári hverju og segir hann flokkinn stefna að því að lækka þennan kostnað verulega. Til þess þurfi að grípa til róttækra aðgerða og þeir sem fremja smávægilega glæpi verði til dæmis gert að afplána heima hjá sér með öklabandi.
Jóhann vill grípa til harðra aðgerða gegn þeim sem gerast sekir um alvarleg brot.
„Þeir sem að hafa framið alvarleg auðgunarbrot verður meinað að eiga viðskipti á Íslandi og á alþjóðlegum grundvelli innan tímamarka sem geta verið frá 5 til 15 ára. Eignir þeirra verða frystar og gerðar upp. Greiddar verða skaðabætur fyrir þá sem að hafa fyrir þeim orðið. Allt annað verður gert upp í ríkissjóð til að styrkja atvinnusköpun og uppbyggingu innviða. Skoðað verður að setja ný lög um þá sem að hafa framið alvarlega glæpi verði sendir úr landi í fangelsi til lengri tíma. Samið verður þá í framhaldinu við önnur ríki um viðtöku þeirra fanga með sem lægstum tilkostnaði fyrir samfélagið.“
Þá segir hann að einstaklingar af erlendu bergi brotnu sem verða uppvísir að alvarlegum brotum hér á landi verði gert að afplána í sínu heimalandi. Þá verði þeir sviptir réttinum til að koma til Íslands þegar afplánun lýkur, allt eftir alvarleika brotsins.
Jóhann er sem fyrr segir fyrrverandi fangi og bendir hann á að flestir fangar hafi komist í kast við lögin vegna áfengis- eða fíkniefnaneyslu.
„Og það átti við í mínu tilviki líka. Besta leiðin að vinna gegn því er AA sem að er lykilinn að betri árangri,“ segir Jóhann sem kveðst þakklátur Tolla Morthens sem starfað hefur með föngum. Hann kynnti Jóhann fyrir AA og hugleiðslu þegar Jóhann sat inni fyrir sín brot.
„Það var mikill vonargeisli á meðan ég afplánaði dóm minn. Þar með er rökrétt að segja að árangur náist í leiðinni á góðu sjálfhjáparstarfi með aðhaldi frá sálfræðingum og hjá geðlæknum.“
Grein Jóhanns má lesa í heild sinni á vef Vísis.