Jóhann J. Ólafsson, fyrrverandi stórkaupmaður, hefur talsverðar áhyggjur af framtíð íslensku þjóðarinnar og segir að henni fækki ört. Er nú svo komið að fæðingar eru 1,7 á hverja fæðandi konu.
Jóhann skrifar greinarstúf um þetta í Morgunblaðið í dag og greinir frá því að hann hafi fengið Benedikt Jóhannesson stærðfræðing til að reikna út hvert stefndi ef svona héldi áfram.
„Svar hans var að þjóð vor yrði horfin eftir 300 ár með þessu háttalagi. Það er ömurlegt að þjóðin sé að stíga til heljar á 300 árum eftir að hafa hokrað í landinu í meira en 1.000 ár, loks þegar hér hefur aldrei verið lífvænlegra í okkar stóra og gjöfula landi.“
Jóhann sgir að fjölmiðlar séu fullir af áhyggjum vegna stórfjölgunar eldri borgara og óhagstæðrar aldursskiptingar þjóðarinnar. Segir Jóhann að nú þurfi að bregðast við af ákveðni og festu og leggur hann til eina ákveðna leið.
„Borga ætti með hverju barni á mánuði. Það yrði besta fjárfesting þjóðfélagsins. Lækka ætti skatta á barnafólk. Allur kostnaður við börn á að vera frádráttarbær frá skatti. Til að sjónarmið rísandi æsku fái meira vægi ætti foreldri að fá viðbótarkosningarétt við hvert barn til 18 ára aldurs þess. Fjölga þarf fæðingarheimilum, leikskólum, grunnskólum og öðru því er greiði götu vaxandi kynslóða.“