Jóhann Sigmarsson, kvikmyndagerðarmaður og listamaður, hefur stofnað nýjan stjórnmálaflokk, Landsflokkinn. Flokkurinn er stofnaður með það fyrir augum að bjóða fram á landinu öllu í kosningunum sem fram fara þann 25. september næstkomandi.
Í tilkynningu sem barst frá flokknum í morgun kemur fram að grunnur að kosningastefnuskrá liggi nú fyrir og verður fyrsti fundur flokksins haldinn á morgun, 20. mars, frá klukkan 14 til 18 á Café Roma á 2. hæð í Kringlunni. En fyrir hvað stendur þetta nýja stjórnmálaafl?
Í tilkynningunni segir að heiðarleiki og samfélagsleg ábyrgð verði leiðarljós flokksins og eftir kosningar muni hann starfa með öllum þeim flokkum sem láta sig velferð, félagshyggju, jafnrétti og umhverfis- og mannúðarmál varða. Þá vilji hann vinna með þeim sem eru tilbúnir að varðveita réttindi þeirra verst settu í þjóðfélaginu. Þá verði lögð áhersl á réttlæti, frelsi og nauðsynlegan stöðugleika í íslensku atvinnu- og efnahagslífi.
„Við viljum að skattar sem greiddir eru til ríkisins séu að mestu leyti notaðir til að styrkja innviði og stoðir samfélagsins alls. Flokkurinn er stofnaður til að þjóna almenningi í landinu af virðingu og heiðarleika. Við berjumst fyrir mannréttindum og virðingu fyrir einstaklingnum og fjölskyldunni. Við höfnum hvers konar mismunun á fólki, til dæmis eftir kynþætti, kynferði, tungumáli, trúarbrögðum, þjóðerni, fötlun, kynhneigð, búsetu eða stjórnmálaskoðunum og munum ávallt verja skoðana- og tjáningarfrelsi, trúfrelsi og friðhelgi einkalífsins.“
Í tilkynningunni er óskað eftir sjálfboðaliðum á öllum aldri; einstaklingum, fjölskyldum, fyrirtækjum, félagasamtökum sem og nýjum meðlimum og fulltrúum á kjörskrá til samstarfs við að byggja upp flokkinn svo hann fái fulltrúa kjörna í haust.
„Með ykkar stuðningi getum við unnið að stefnu okkar af heilindum og tekið þátt í að móta gott samfélag sem að verðugt er að búa í fyrir fólk til framtíðar. Við viljum láta verkin tala í nafni heiðarleika, jafnræðis og réttlætis vegna nauðsynlegra breytinga og velfarnaðar í þjóðfélaginu.“
Í tilkynningunni segir um helstu stefnumál að þau séu leiðrétting á málefnum aldraðra og öryrkja, uppstokkun á fiskveiðistjórnunarkerfinu, tiltekt og hagræðing í stjórnsýslu, afglæpavæðing og niðurskurður á rekstri fangelsa í landinu. Stórfelld uppbygging í heilbrigðis og menntamálum. Einnig að kærunefnd Útlendingamála verði lögð af og þess í stað settur á fót mannréttindadómstóll og embætti umboðsmanns flóttafólks sem hafi eftirlit með störfum Útlendingastofnunar. Að tekið verði á umgengnistálmunum til jafns við það sem tíðkast í nágrannaríkjum okkar. Að fjölmenning og fjölbreytt samfélag er okkar veruleiki og honum beri að fagna, ekki tortryggja.
Þá segir að fyrsta frumvarp flokksins til Aþingis verði ný stjórnarskrá með endurbættum stjórnarháttum sem varða mannréttindi og mannúð gagnvart íbúum landsins. „Í þessu ljósi setjum við okkur nýja stjórnarskrá, æðstu lög landsins, sem öllum ber að virða.“
Hægt er að kynna sér flokkinn nánar hér.