„Það er til mikils að vinna að sporna gegn óþarfri notkun nagladekkja, draga úr svifryksmengun og fækka ótímabærum dauðsföllum af völdum hennar,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, í aðsendri grein á vef Vísis.
Jóhann Páll og samherjar hans í þingflokki Samfylkingarinnar hafa lagt fram frumvarp þess efnis að heimilt verði að rukka gjald upp á allt að 40 þúsund krónur vegna notkunar nagladekkja. Er markmið frumvarpsins að draga úr notkun nagladekkja.
Varfærnisleg skref
Í grein sinni segir Jóhann Páll að um sé að ræða varfærnisleg skref til að sporna gegn óþarfri notkun á nagladekkjum í þéttbýli. Nefnir hann nokkur dæmi sem vert er að hafa í huga þegar fjallað er um málið. Í fyrsta lagi nefnir Jóhann Páll svifryksmengun á höfuðborgarsvæðinu sem fer margsinnis á hverju ári yfir skilgreind heilsuverndarmörk. Þetta hafi í för með sér skerðingu á lífsgæðum og frelsi fólks til að anda að sér hreinu og heilnæmu lofti.
„Þessi loftmengun kemur harðast niður á viðkvæmum hópum: eldra fólki, börnum, þunguðum konum og fólki með hjarta-, æða- og öndunarfærasjúkdóma.“
Vísar Jóhann Páll í upplýsingar Umhverfisstofnunar Evrópu sem áætlar að rekja megi allt að 70 ótímabær dauðsföll á ári til svifryksmengunar á Íslandi. Þá sé svifrykið krabbameinsvaldandi og rannsóknir hafi sýnt að innlögnum á sjúkrahús fjölgar þegar svifryksmengun er mest.
Nagladekkin stærsti orsakavaldurinn
„Rannsóknir sýna að langstærsti orsakavaldur svifryksmengunar á höfuðborgarsvæðinu er nagladekkjaakstur. Nagladekk slíta malbiki 20 til 30 sinnum hraðar en önnur dekk og valda þannig hundruða milljóna tjóni á sveitarfélagavegum, sameiginlegri eign útsvarsgreiðenda, auk þess að skaða heilsu fólks.“
Jóhann Páll segir að frumvarpið geri ráð fyrir að sveitarstjórnir fái heimild til að innheimta gjald fyrir notkun nagladekkja á tilteknum svæðum fyrir ákveðið tímabil eða ákveðin skipti.
„Ólíklegt verður að teljast að sveitarfélög utan höfuðborgarsvæðisins nýti sér heimildina,“ segir hann og bætir við að frumvarpið snúist ekki um að banna nagladekk eða skikka öll sveitarfélög á landinu til að rukka fólk eða sekta fyrir notkun á nagladekkjum.
„Notkun nagladekkja er bönnuð allan ársins hring í fjölda Evrópuríkja, meðal annars í Hollandi, Póllandi og Tékklandi, þar sem sannarlega er snjókoma og fljúgandi hálka á veturna. Ekkert slíkt er lagt til í frumvarpinu sem ég og fleiri stöndum að heldur einungis heimild til gjaldtöku.“
Til mikils að vinna
Loks bendir Jóhann Páll á að í norskum umferðarlögum sé að finna samsvarandi gjaldtökuheimild og lögð er til í frumvarpinu.
„Nokkrar borgir í Noregi hafa tekið upp slík gjöld og átt samstarf sín á milli um framkvæmdina, m.a. Þrándheimur sem er um margt líkur Reykjavíkurborg hvað varðar stærð og veðurfar.“
Jóhann Páll segir til mikils að vinna að sporna gegn óþarfri notkun nagladekkja, draga úr svifryksmengun og fækka ótímabærum dauðsföllum af völdum hennar. „Ég hlakka til umræðu á Alþingi um þetta mál og hvet stjórnmálamenn úr fleiri flokkum til að leggja til lausnir á svifryksfaraldrinum á höfuðborgarsvæðinu.“