Jóhann Páll hristir hausinn: Svona var dag­skrá Al­þingis í dag

Jóhann Páll Jóhanns­son, fyrr­verandi blaða­maður og fram­bjóðandi Sam­fylkingarinnar fyrir komandi Al­þingis­kosningar, hristir hausinn yfir dag­skrá Al­þingis í dag. Þing kom saman í dag eftir vikna páska­frí og hefðu ef­laust margir talið að sótt­varnar­lög yrðu ofar­lega á blaði eftir at­burði síðustu vikna.

Jóhann Páll segir á Face­book-síðu sinni:

„Í dag kemur þing saman eftir tveggja vikna frí og fjallar t.d. um þær reglur sem gilda um ræktun og fram­leiðslu iðnaðar­hamps, sölu á nikó­tín­vörum, raf­ræn með­mæli vegna kosninga, allt mikil­væg mál­efni – en hvernig væri samt að byrja á því að laga sótt­varna­lögin og tryggja að ráð­herra hafi vald­heimildir til að setja reglur í takt við ráð­leggingar sótt­varnar­yfir­valda – há­marka þannig líkurnar á að við getum sem flest notið sumarsins.“

Helga Vala Helga­dóttir, þing­kona Sam­fylkingarinnar, segir að á­stæðan sé í raun ein­föld: „Sjálf­stæðis­flokkurinn hefur neitunar­vald í ríkis­stjórn og þess vegna kemur þetta frum­varp ekki fram.“

Jóhann Páll vísar svo í færslu sinni til hlut­falls þeirra sem vilja harðari sótt­varnar­að­gerðir á landa­mærum, sam­kvæmt könnun Fé­lags­vísinda­stofnunar Há­skóla Ís­lands.

„Ef rýnt er betur í gögnin má sjá að hátt í helmingur vill „mun harðari að­gerðir“ á landa­mærum, 18 prósent vilja ó­breytt á­stand og innan við 3 prósent vilja til­slakanir.

97 prósent treysta sótt­varna­lækni sem hefur ein­mitt talað fyrir hertum sótt­vörnum á landa­mærum, og mun fleiri eru ó­á­nægðir heldur en á­nægðir með á­form ríkis­stjórnarinnar um að taka upp lita­kóðunar­kerfi við landa­mærin þann 1. maí þvert á vilja sótt­varna­læknis.“

Jóhann Páll segir að það ríki sem sagt nokkuð breið sam­staða meðal lands­manna um nauð­syn­legar sótt­varnar­ráð­stafanir en al­ger ó­eining innan stjórnar­liðsins.

„Ráð­herrar og þing­menn hafa talað þver­s og kruss og Al­þingi skellti sér í páska­frí án þess að tryggja að laga­grund­völlur væri fyrir þeim að­gerðum sem taldar eru á­hrifa­ríkastar til að verja heilsu, frelsi og efna­hag innan­lands.“