Jóhann Óli Eiðsson, blaðamanni á Viðskiptablaðinu, barst heldur óvenjulegur tölvupóstur fyrir skemmstu. Jóhann segir frá þessu í færslu á Twitter sem vakið hefur kátínu margra. Hann segir sjálfur að um sé að ræða besta tölvupóst sem hann hefur fengið.
Pósturinn byrjar á þeim varnaðarorðum að hugsanlega sé þetta skrýtnasti tölvupóstur sem hann hefur fengið. Svo heldur viðkomandi áfram:
„Málið er að ég hef verið að díla við bank í ofnunum hjá mér og er búinn að fá nokkra pípara til að kíkja á þetta. Þeir voru bara alls ekkert vissir um hvað þetta væri og vildu helst ekki vera að snerta á ofnakerfinu til að prófa bara eitthvað.“
Hann heldur svo áfram:
„Þá fór ég að gúggla, og þar kemur þú til sögunnar. Ég gúgglaði „bank í ofni“ og þá poppaði ýmislegt upp, þar á meðal twitter færsla frá þér þar sem þú tekur upp myndband af ofni með bank-hljóði sem er NÁKVÆMLEGA eins og hljóðið sem kemur reglulega í ofnunum hjá mér (hljóðið hættir ef ég hækka aðeins í krananum, en kemur reglulega aftur).“
Viðkomandi endar svo færsluna á þeim orðum að þetta sé vissulega „grillaður“ tölvupóstur. „En mér datt í hug að athuga, áður en ég held áfram að reyna að finna út úr þessu, hvort þú hefðir fundið út ur því hvað veldur þessu banki?“
Jóhann Óli deilir svo gömlu Twitter-færslunni, sem er frá árinu 2017, og geta áhugasamir hlustað á hljóðið hér að neðan. Ekki kemur fram hvort Jóhann Óli hafi fundið lausn á vandanum á sínum tíma og hvort hann hafi getað komið sendanda tölvupóstsins að gagni.
Þetta. Er. Besti. Tölvupóstur. Sem. Ég. Hef. Fengið. pic.twitter.com/cE3upqWZX9
— Jóhann Óli Eiðsson (@jedissson) October 11, 2021