Jóhann Sigurður Jóhannsson, liðsmaður Gagnamagnsins, greindist með COVID-19 í skimun íslenska hópsins í morgun. Jóhann greinir frá þessu á Instagram-síðu Gagnamagnsins og augljóst að tíðindin hafi fengið mikið á hann.
„Mér er brugðið og ég er vonsvikinn og sorgmæddur yfir þessu,“ segir hann í myndbandinu áður en hann brotnar niður. Sem betur fer er hann þó við góða heilsu og einkennalaus.
Jóhann segir að íslenski hópurinn hafi lagt afar hart að sér og hann hafi virkilega langað að stíga á svið í Rotterdam. Ljóst er að Ísland verður ekki á sviðinu á seinna undanúrslitakvöldinu annað kvöld og þá er óvíst hvort hópurinn fari á svið á laugardag, fari svo að lagið komist áfram.
Jóhann segir að íslenski hópurinn sé stoltur af myndbandinu sem sýnt verður annað kvöld.
„Ég vona að við gerum Íslendinga stolta sem og stuðningsmenn okkar,“ segir Jóhann og bætir við að hann sé enn að vinna úr þeim fréttum að vera smitaður. Hann segist hafa gert allt sem hann gat til að vera öruggur en eitthvað hafi farið úrskeiðis.
„Ég vona að þið skiljið þessar aðstæður og haldið áfram að styðja okkur,“ segir hann meðal annars.