Jóhann fjarlægði ásakanirnar á hendur Eddu

Veitingamaðurinn Jóhann Gunnar Baldvinsson fjarlægði tístið þar sem hann fór fram með ásakanir á hendur hlaðvarpsstjórnandanum Eddu Falak.

Líkt og greint var frá í morgun kom til harðra orðaskipta á milli þeirra á Twitter í gærkvöldi.

Jóhann hefur ekki svarað og því má skilja það sem svo að hann dragi allar ásakanir á hendur Eddu til baka og hefur fyrri frétt um málið því verið eytt.