Jóhann búinn að finna nafn á gíginn í Geldingadölum – Viss um að það verður ekki allra

Jóhann L. Helgason, húsasmíðameistari og eldri borgari, skrifar stundum áhugaverðar greinar í Morgunblaðið. Í dag skrifar hann skemmtilegan pistil um eldgosið í Geldingadölum, eða öllu heldur hvað aðalgígurinn í eldstöðinni á að heita.

Pistill Jóhanns byrjar svona:

„Halló. Menn hafa verið að velta fyrir sér nafni á nýja aðalgíginn á Reykjanesi. Nú hef ég fundið nafnið, en auðvitað verður það ekki allra frekar en margt annað sem við Íslendingar erum svo mikið sammála um að vera ósammála um,“ segir Jóhann sem kemur sér svo að kjarna málsins:

„Nafnið er Gutti. Í svona daglegu tali er það nafn á strák sem er óttalegur gutti, stríðinn prakkari, óútreiknanlegur fjörkálfur sem erfitt er að henda reiður á. Og svo getur Gutti líka látið gott af sér leiða.“

Nokkuð hefur verið rætt um nafn á nýja hraunið sem nú rennur um svæðið en greint hefur verið frá því að Fannar Jónsson, bæjarstjóri Grindavíkur, hyggist efna til íbúakosningar um val á nafninu.

Jóhann nefnir svo í útúrdúr að í gamla daga hafi hann þekkt einn Gutta sem var alltaf með pening í vasanum, annað en þeir hinir pjakkarnir sem voru alltaf með tóma vasa.

„Og hvað skyldi nú Gutti hafa gert til að verðskulda þessa aura í vasa sínum? Jú, eitt dæmi um snilli Gutta var nefnilega það að kaupmaðurinn á horninu hjá okkur keypti flöskur af fólki fyrir smá pening. Þar sá hann skyndilega tækifærið. Á kvöldin skreið hann undir girðinguna baka til hjá kaupmanni og stal flöskum til að læðast með heim eða fela annars staðar. Daginn eftir kom hann með glerið í búðina til kaupmanns, sem svo keypti sínar eigin flöskur og borgaði Gutta yfir afgreiðsluborðið í beinhörðum peningum og hann keypti svo sælgæti handa okkur strákunum fyrir aurinn!“

Jóhann bendir á að það viti enginn hvenær eldgosið hættir eða hversu mikið af kviku gígurinn á eftir að gefa af sér, hann sé þó alveg óútreiknanlegur.

„Þó vitum við að Gutti er alger gullnáma fyrir land og þjóð. Eldgosið er í sjálfu sér lítið, sem betur fer, en stórmerkilegt náttúrufyrirbæri og nú þegar orðið víðfrægt og mikil landkynning fyrir Ísland. Gutti gat ekki heldur valið sér betri stað á Reykjanesinu til að gjósa, og á eftir að draga tugi þúsunda ferðamanna til landsins, með mikilli gjaldeyrisöflun í kjölfarið. Gat ekki komið á betri tíma fyrir pyngju þjóðarinnar. Þökkum Gutta.“