Jóhann Bjarni og þrír í fjöl­skyldu hans með CO­VID-19

Jóhann Bjarni Kol­beins­son, frétta­maður á RÚV til margra ára, greinir frá því í opinni færslu á Face­book að hann, unnusta hans og tvö börn, 9 ára og 9 mánaða, séu með CO­VID-19. Sýni fimm ára dóttur þeirra reyndist nei­kvætt.

Jóhann Bjarni segir að margir hafi sett sig í sam­band við fjöl­skylduna á undan­förnum dögum og því sé best að upp­lýsa um stöðuna.

„Við erum öll í ein­angrun austur á landi, þar sem við greindumst. Við höfum það þokka­legt og erum með frekar lítil ein­kenni,“ segir hann. Fyrstu ein­kenni gerðu vart við sig hjá konunni hans, Ey­rúnu, sem var veik í nokkra daga áður en hún fór í sýna­töku á Egils­stöðum og greindist með smit.

„Við hin fórum í skimun í kjöl­farið. Ekkert okkar er með mikil ein­kenni. Við getum ekki annað en vonað að það haldist þannig,“ segir Jóhann Bjarni.

Hann segir að skiljan­lega hafi frétt um að níu mánaða barn hafi greinst með veiruna vakið mikil við­brögð. Um er að ræða dóttur þeirra og segir Jóhann Bjarni að hún sé brött og með lítil sem engin ein­kenni.

„Við höfum ekki hug­mynd um hvar eða hvernig við smituðumst. Við höfum verið á mjög löngu ferða­lagi um landið, og vorum á Norður­landi í ca. viku nokkrum dögum áður en Ey­rún fékk fyrstu ein­kenni. Okkur grunar að við höfum smitast þar; lík­lega á Akur­eyri, Húsa­vík eða Mý­vatni. Enginn vina okkar sem við hittum á þessum stöðum er hins vegar smitaður, að því er við best vitum. Það er því lík­legast að við höfum smitast á til­viljana­kenndum stað; í verslun, í sundi, á veitinga­stað, hóteli eða öðrum slíkum stað. Það segir sína sögu um hversu of­boðs­lega skæð þessi veira greini­lega er,“ segir Jóhann Bjarni í færslunni.

Hann segir að 15 manns hafi verið settir í sótt­kví vegna tengsla við fjöl­skylduna áður en smitið greindist. Þá segir hann að heil­brigðis­yfir­völd hafi haldið vel utan um fjöl­skylduna, bæði heil­brigðis­stofnunin fyrir austan, CO­VID-göngu­deildin á Land­spítalanum, Barna­spítalinn og smitrakningar­teymið. „Þetta fólk á allt mikið hrós skilið.“

Í ljósi þess að fjölmargir hafa sett sig í samband við okkur Eyrúnu á undanförnum dögum, og margir eru eðlilega...

Posted by Jóhann Bjarni Kolbeinsson on Mánudagur, 17. ágúst 2020