„Joe & the Juice hefur um ára­bil verið lang vin­­sælasti veitinga­­staðurinn á vellinum“

For­svars­menn Joe & the Juice eru gáttaðir á á­kvörðun Isavia um að út­hýsa veitinga­staðnum af Kefla­víkur­flug­velli, að því er fram kemur í frétt á vef Frétta­blaðsins.

Áður kom fram í Morgunblaðinu að veitinga­­staðurinn Nord, barinn Loksins og Joe & the Juice myndu brátt hverfa á braut úr flug­­stöðinni. Tvö veitinga­­rými verða boðin út saman og einnig í boði að taka að sér þriðja veitinga­­rýmið annars staðar í flug­­stöðinni.

„Joe & the Juice hefur um ára­bil verið lang vin­­sælasti veitinga­­staðurinn á vellinum. Sé horft til skoðana­kannana sem ISAVIA hefur fram­­kvæmt er ljóst að vöru­­fram­­boð og þjónusta Joe & the Juice passar nær full­kom­­lega við óskir ferða­langa, bæði inn­­lendra og er­­lendra. Á­­kvörðun um að sækjast eftir annars­­konar veitingum kom okkur því veru­­lega á ó­­vart,“ segir Agla Jóns­dóttir, fjár­­mála­­stjóri Joe Ís­land ehf.

„Fé­laginu þykir það ein­­kenni­­leg nálgun að út­hýsa vöru og þjónustu með þessum hætti í stað þess að bæta frekar við öðrum val­­mögu­­leikum og auka þannig hag opin­bera fyrir­­­tækisins ISAVIA og bjóða ferða­löngum það sem þeir óska eftir,“ segir í til­kynningu frá fé­laginu.

„Dagurinn hefur farið í að ræða við sam­­starfs­­aðila og starfs­­fólk en við höfum einnig fengið fjöldann allan af skila­­boðum frá við­­skipta­vinum sem lásu um þetta í fjöl­­miðlum í morgun. Joe mun starfa ó­­breytt fram til ára­­móta og bjóðum við alla vel­komna til okkar. Í kjöl­farið munum við skoða alla mögu­­leika sem bjóðast á Kefla­víkur­velli enda ljóst að mikil eftir­­­spurn er eftir okkar vörum og þjónustu þar,“ segir Agla.