Segja má að Jódís Skúladóttir, þingmaður Vinstri-grænna, hafi opnað sig upp á gátt í fyrstu ræðu sinni á Alþingi. Jódís sagði að pósthólf þingmanna fylltust af hjálparbeiðnum frá fátæku fólki og öryrkjum sem þurfi á aðstoð að halda fyrir jólin.
„Ástæðan fyrir því að ég kveð mér hljóðs hér í dag er sú að pósthólfið mitt er yfirfullt af póstum frá fátækum Íslendingum, öryrkjum sem hrópa á aðstoð fyrir jólin. Mig langar að segja við ykkur: Ég sé og ég heyri og ef ég gæti svarað hverjum pósti og ef ég gæti hjálpað hverju og einu þá myndi ég gera það en á því hef ég ekki tök,“ sagði hún.
Fór hún svo yfir eigin sögu en hún hefur þurft á opinberri þjónustu að halda.
„Sonur minn elsti sem ég eignaðist þegar ég var fjórtán ára gömul var langveikt barn. Barnaspítalinn er í Reykjavík. Ég er þolandi kynferðisofbeldis. Hjálpin er í Reykjavík. Ég er lögfræðingur að mennt. Ég þurfti að sækja mína menntun til Reykjavíkur,“ sagði Jódís.
„Hér hefur verið talað um að fólk standi í röðum út af jólamat. Víða á landsbyggðinni eru engar raðir af því að þar er engin hjálp.“