Jódís missti son í sumar: Landsmenn sitja ekki við sama borð þegar dauðinn knýr dyra

Jódís Skúladóttir, þingkona Vinstri grænna, segir mikilvægt að landsmenn búi við jafnræði þegar dauðinn knýr dyra. Jódís missti dreng úr móðurkviði þann 3. júní síðastliðinn, Sigbjörn Skógar Jódísarson. Fréttablaðið ræðir við Jódísi í dag.

Jódís flutti fyrir skemmstu tillögu um að dómsmálaráðherra skipi starfshóp um umönnun og geymslu líka. Sagði hún mikilvægt að tekið yrði saman hve mörgu sé ábótavant úti á landi. Landsmenn sitji nefnilega ekki allir við sama borð þegar dauðinn knýr dyra.

Frétta­blaðið sagði frá því á dögunum að dæmi væru um að lík væru flutt með flutninga­bíl innan um vörur svo sem kar­töflu­poka. Blaðið vitnaði í þing­ræðu Jó­dísar þar sem þetta kom fram. Segist Jó­dís hafa fengið mikil við­brögð frá fólki en þau hafi einkum snúist um þá mis­munun sem í­búar búi við eftir land­svæðum.

Í samtali við Fréttablaðið í dag segist hún hafa fengið eins góða þjónustu og hægt var að vænta í kjölfar missisins. Það vó samt þungt að hún var stödd í Reykja­vík á Kvenna­deild Land­spítalans þegar missinn bar að.

„Ég bý á Egils­stöðum, en þegar þetta gerðist var ég í bestu að­stæðum, á höfuð­borgar­svæðinu,“ segir Jó­dís. „Ég velti fyrir mér hvað hefði orðið ef þetta hefði gerst fyrir austan,“ bætir Jó­dís við í samtali við Fréttablaðið.

Nánar er fjallað um málið í Fréttablaðinu í dag og á vef Fréttablaðsins.