Jenný Anna Baldursdóttir, sem um langt skeið var einn vinsælasti bloggari landsins, er látin. Jenný lést á Landspítalanum við Hringbraut síðastliðinn fimmtudag. Hún var 69 ára.
Greint er frá andláti hennar í Morgunblaðinu í dag.
Margir muna eftir bloggi Jennýjar en hún byrjaði á Moggablogginu árið 2007. Hún var þekkt fyrir að draga ekkert undan í skrifum sínum og var blogg hennar það vinsælasta á Moggablogginu. Hún færði sig um set árið 2009 eftir að Davíð Oddsson tók við sem ritstjóri Morgunblaðsins. Sagðist hún ekki geta hugsað sér að „blogga, lesa eða kitla teljara Moggans“ með Davíð við stjórnvölinn.
Jenný fór í nokkur viðtöl á sínum tíma en í viðtali við Kolbrúnu Bergþórsdóttur í Morgunblaðinu árið 2008 sagði hún frá upphafi bloggferilsins. Þá var hún í viðtali við Fréttablaðið árið 2007.
„Ég byrjaði að blogga í febrúar 2007 því þá hafði ég allt í einu svo mikinn tíma. Ég var nýlega komin úr meðferð eftir að hafa drukkið á mig sykursýki, orðin sjúklingur og gat ekki unnið. Ég hafði áður unnið mjög mikið og var nú kyrrsett heima með þeim afleiðingum að ég fór að blogga eins og enginn væri morgundagurinn.“
Í viðtalinu sagði hún að upphaflega markmiðið hafi verið að blogga um alkóhólismann og hvernig hún tækist á við hann. „Ég hef ekkert að fela og það skiptir mig máli að hafa staðreyndir um líf mitt þarna úti á veraldarvefnum,“ sagði hún meðal annars.
Útför Jennýjar mun fara fram í kyrrþey að hennar ósk, að því er segir í Morgunblaðinu.