Játaði ekki að hafa orðið Armando að bana fyrr en hann var kominn upp að vegg

Sak­borningurinn sem játaði í haldi lög­reglu að hafa orðið Armando Beqirai að bana í Rauða­gerði í febrúar vildi ekki játa þar til lög­regla sýndi honum þau sönnunar­gögn sem lágu fyrir í málinu.

Þetta sagði Margeir Sveins­son, yfir­lög­reglu­þjónn á blaða­manna­fundi lög­reglunnar nú síð­degis. Þar kom fram í fyrsta skiptið að játning liggur nú fyrir í málinu. Armando var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt að­fara­nótt 14. febrúar síðast­liðsins.

„Nú liggur fyrir játning í málinu sem passa við gögn og kenningar lög­reglu um það hvernig at­burða­rásin átti sér stað. Þau sem lög­reglan telur eiga hvað mesta aðild að málinu komu frá Albaníu líkt og hinn látni,“ sagði Margeir.

Fjór­tán manns eru með stöðu sak­bornings í málinu og segir lög­regla það vekja furðu hve mörg þjóð­erni eru þar á ferðinni. Þá segir Armando hafa tengst skipu­lagðri glæpa­starf­semi.

„Hann neitaði þangað til hann var kominn upp við vegg, ef svo má segja. Þannig hefur rann­sókn þessa máls verið heilt í gegn. Í upp­hafi vorum við með af­skap­lega lítið í höndunum. Og kom af­skap­lega lítið fram til að gera í yfir­heyrslum. Þannig þetta var eigin­lega bara byggt á gögunum og þeim að­ferðum sem við höfum beitt.“

Margeir segir lög­reglu eiga eftir 2-3 vikur af rann­sókn málsins. Ljóst er að hópurinn sem myrti Armando kom ekki hingað til lands gagn­gert í þeim til­gangi, heldur hafa flestir verið bú­settir hér um nokkurra ára skeið.

Ljósmynd/Almannavarnir