Jarðskjálftavirkni tekur aftur upp á sig við Fagradalsfjall

Skjálftavirkni virðist vera að taka sig aftur upp, að sögn Einars Hjörleifssonar, náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofu Íslands í samtali við Fréttablaðið.

Þétt hrina smáskjálfta á sér snú stað norðan við Fagradalshraun í Geldingadölum.

Einar segir Veðurstofuna vera að vakta smáskjálftavirkni á svæðinu. „Þetta er ekki hefðbundið. Við sjáum að jarðskjálftavirkni virðist vera að taka sig upp aftur á Reykjanesskaganum,“ segir hann við Fréttablaðið.