Jarðskjálftar og hamfarir: Hvar er eiginlega öruggast að búa á Íslandi?

Óhjákvæmilegur fylgifiskur þess að búa á Íslandi er nálægðin við náttúruöflin sem geta látið til sín taka hvenær sem er. Þessu hafa íbúar á suðvesturhluta landsins fengið að kynnast undanfarna daga í þeirri jarðskjálftahrinu sem staðið hefur undanfarna viku.

Í Fréttablaðinu í dag er rætt við Sigurð Árnason, sérfræðing hjá Byggðastofnun, og Einar Sveinbjörnsson veðurfræðing um þá staði á landinu sem eru hvað öruggastir þegar kemur að náttúruvá.

Sigurður bendir á að á Íslandi sé varla til það byggðarlag sem er laust við náttúruvá. Þannig geti vont veður látið til sín taka alls staðar á landinu en hættan þegar kemur að annarri náttúruvá sé ekki ýkja mikil á stöðum eins og Blönduósi, Egilsstöðum og Búðardal svo dæmi séu tekin.

„Ég velti einnig fyrir mér Djúpavogi. Svo man ég nú ekki eftir neinu hættulega á Hvammstanga. Og núna þegar við tölum saman þá man ég ekki eftir neinu í Borgarnesi nema roki. Þú finnur reyndar ekki stað á Íslandi þar sem er ekki rok,“ hefur Fréttablaðið eftir Sigurði.

Einar Sveinbjörnsson segir að honum detta Egilsstaðir í hug, þar séu ekki ofanflóð og ekki jarðskjálftar. Hann minnir þó á að gös úr eldgosinu í Holuhrauni lögðust yfir Hérað og það megi taka tillit til þess. Þá sé ekki mikil náttúruvá á Akureyri og á Blönduósi þó sagðir hafi verið fréttir af snjóflóðahættu þar. Hættan sé ekki mikil.

„Það eru engin byggðarlög sem er hættulegt að búa á. Hættusvæðin hafa verið kortlögð og metin og það má ekki byggja á þannig svæði,“ segir hann meðal annars.

Manstu eftir fleiri stöðum á Íslandi sem eru öruggari en aðrir í þessu tilliti?