Jarðskjálftahrina hófst í nótt á afar óvenjulegum stað undan ströndum Íslands og stendur enn yfir. Þetta kemur fram í frétt mbl.is
Fleiri skjálftar hafa nú riðið yfir síðastliðna klukkutíma en síðustu þrjátíu ár samkvæmt Veðurstofu Íslands.
Miðpunkturinn er utarlega í Bakkaflóadjúpi, tæpum 50 kílómetrum austnorðaustur af Fonti, en svo nefnist ysti oddur Langaness.
Hrinan hófst korter korter í þrjú í nótt með skjálfa sem mældist 1,9. Á annan tug skjálfta hefur fylgt í kjölfarið, þar af tveir af stærðinni 2,9.
Langflestir skjálftanna sem hafa mælst til þessa eru yfir tveimur að stærð. Ljóst er að hrinan vekur spurningar á meðal jarðvísindamanna.
„Það hafa orðið skjálftar þarna áður,“ segir Lovísa Mjöll Guðmundsdóttir náttúruvársérfræðingur í samtali við mbl.is. En þeir eru ekki margir.
„Ef við lítum allt aftur til ársins 1991, þegar þetta kerfi var sett á laggirnar, þá hafa mælst þarna um tíu skjálftar þar til núna.“
Aðspurð kveðst Lovísa ekki geta fullyrt hvað valdi þessari óvenjulegu hrinu. Hún segir skjálftasérfræðinga Veðurstofunnar nú vinna í því að leita skýringa.