Jakub stígur fram: „Að læra íslensku er vinna og gríðarlegt álag“

Jakub Stachowiak, skáld sem er af pólskum uppruna en yrkir á íslensku, segist sjá sig knúinn til að stíga fram í ljósi umræðunnar um málefni íslenska tungumálsins og útlendinga.

Eiríkur Rögnvaldsson, fyrrverandi prófessor í íslensku, nefndi til dæmis á dögunum að stéttarfélögin ættu að setja það inn í kröfugerð fyrir komandi kjarasamningsviðræður að erlent starfsfólk fái að læra íslensku á vinnutíma.

„Atvinnurekendur bæru kostnaðinn af þeirri vinnuskerðingu sem af þessu hlytist, en stjórnvöld kæmu á móti með því að sjá til þess að mennta hæfa kennara, greiða fyrir vinnu þeirra og útvega góð kennslugögn,“ sagði Eiríkur í grein á vefsíðu sinni á vef Háskóla Íslands.

Jakub segir að það sé gríðarleg vinna að læra íslensku en hann hefur búið hér á landi frá árinu 2016. Í fyrra kom út ljóðabók hans á íslensku, en hann hófst strax handa við að læra tungumálið þegar hann flutti til Íslands.

„Í ljósi umræðunnar sem geysir nú yfir langar mig að benda ykkur á þetta: að læra íslensku er vinna. Gríðarleg vinna og gríðarlegt álag. Margir furða sig á því að mér hafi tekist að læra íslensku í eitt ár, en þetta eru engir töfrar og ég er ekkert undrabarn, ég vann einsog brjálæðingur fyrir þetta,“ segir Jakub í færslu á Facebook-síðu sinni sem vakið hefur talsverða athygli. Hann nefnir dæmi:

„Á fyrsta ári í íslenskunámi á prófatíma þurfti ég að fara í vinnu, fara svo í próf og svo aftur í vinnu. En ég gat þetta því ég á engin börn, engin gæludýr, hvorki íbúðalán, né stúdentalán til að borga af, sem er mikil forréttindastaða. Ég endurtek: að læra íslensku er vinna og gríðarlegt álag. Og við þurftum að gera hvað sem í okkar valdi stendur til að minnka þetta álag fyrir þá sem vilja leggja sig af mörkum til að læra þetta fallega mál sem er jú í útrýmingarhættu. Ef það felur í sér að láta fólki vera í kennslu á almennum vinnutíma og borga fyrir það, so be it.“