Leikarinn Arnar Dan Kristjánsson biðst afsökunar á að hafa tekið þátt í menningarnámi við uppsetningu óperunnar Madame Butterfly.
„Ég tók þátt í menningarnámi. Mér þykir það sárt.“ skrifar hann í færslu á Facebook-síðu sinni en Fréttablaðið greinir frá.
Sýningin hefur verið áberandi í umræðunni síðustu daga, eftir að Laura Liu, kínversk-amerískur fiðluleikari hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands, gagnrýndi sýninguna Madama Butterfly og sagði hana ýta undir rasískar staðalímyndir.
Stjörnublaðamaðurinn Jakob Bjarnar Grétarsson gefur lítið fyrir ákvörðun Arnars.
„Já, ók. Spennandi. Ætlar hann að mæta á sviðið í Superman-búningi?“ spyr Jakob og deilir frétt Vísis af málinu.
Guðmundur Brynjólfsson er ósammála Jakobi og segir í athugasemdum: „Mér finnst sjálfsagt að virða persónulega upplifun leikarans og bera virðingu fyrir henni, hann andæfði því sem honum fannst óþægilegt á æfingatíma verksins og er það vel. Hitt skrifa ég ekki upp á að verkið sé rasískt eða þau efnistök að setja verk upp á hefðbundinn klassískan máta feli í sér einhverjar meiningar til niðrunar í samfélagi okkar í dag. Auðvitað er hægt að nota þetta verk eins og nánast öll listaverk til neikvæðs áróðurs en sem betur fer er slíkt sjaldgæft og svo mjög að það réttlætir ekki ritskoðunartilburði eða tal um kynþáttahatur,“ skrifar Guðmundur.
Jakob Bjarnar gefur lítið fyrir rök Guðmundar. „You gotta be shittin me? Ég hef tekið þátt í fjöldanum öllum af leiksýningum, sem leikari, aðstoðarleikstjóri og leikstjóri. Það er einhver lögn, einhver heildarsvipur... ef einhver einn vill ekki vera í búningi sínum þá bara stígvélið beint í þjóhnappa hans og vertu sæll og blessaður.“