Jakob sagðist vera frægastur í Covid-röðinni en dóttir hans sagðist hafa séð einn frægari – Hvort þeirra hefur rétt fyrir sér?

Jakob Bjarnar Grétarsson, hinn skeleggi blaðamaður Vísis, skellti sér í Covid-röðina við Suðurlandsbraut í gær á öðrum degi jóla. Með í för var dóttir hans, Nanna Elísa Jakobsdóttir.

Röðin í gær var býsna löng og segist Jakob hafa þurft að bíða í eina og hálfa klukkustund. Þeim virðist þó ekki hafa leiðst neitt sérstaklega mikið ef marka má skemmtilega færslu sem Jakob birti á Facebook-síðu sinni í gær, enda hátíðarstemning og jólasnjór á höfuðborgarsvæðinu.

„Nanna þurfti ekki að sussa á pabba sinn nema stöku sinnum. Eitt þeirra skipta var þegar ég spurði hana fjálglega hvort hún gæti ímyndað sér hvernig það væri fyrir mig að vera frægasti einstaklingurinn í svona langri röð?“

Jakob segir að Nönnu hafi þótt þessi yfirlýsing fáránleg og í raun hálfvitaleg.

„Tjáði mér það afar ströng á svip í hálfum hljóðum. Fyrir það fyrsta væri ekkert að marka mig því ég þekkti engan með grímu á andlitinu. Og að auki væri þetta rangt, hún væri búin að sjá annan sem væri frægari,“ segir Jakob.

Hann segir að Nanna hafi þverneitað að ræða þetta frekar en hún hafi svo leyst frá skjóðunni í bílnum á leiðinni heim hver það var sem hún sá. Var þar um að ræða Óskar Magnússon, lögmaður, rithöfundur og fyrrverandi útgefandi Morgunblaðsins.

Jakob spyr svo vini sína á Facebook hvort hann sé ekki örugglega frægari en Óskar. Um það virðast vera skiptar skoðanir og kannski ekki alveg að marka vini Jakobs til að gefa rétta mynd af því hvor þeirra er frægari. Óskar er þó alveg viss í sinni sök eins og hann gaf til kynna í athugasemd við færslu Jakobs.

„Þessu er ég ósammála. En ég var bæði gleraugnlaus og grímulaus og með húfu og hettu. Samt þekkti hún mig. Leikið það eftir lasarusar.“