Jakob F. Ásgeirsson, stofnandi og eigandi bókaútgáfunnar Uglu, hefur tilkynnt þá ákvörðun Pennans Eymundsson, að taka nýjar og nýlega bækur útgáfunnar úr sölu, til Samkeppniseftirlitsins.
Jakob segir frá þessu í færslu á Facebook-síðu sinni en Morgunblaðið greindi frá málinu í morgun. Ugla fékk fjögur bretti af bókum, samtals 25 titla, endursend fyrir skemmstu en Jakob segir að ástæðan sé sú að umræddar bækur eru einnig aðgengilegar í streymi hjá hljóðbókaveitunni Storytel.
Stillt upp við vegg
Jakob telur að þetta sé ekki eðlilegt en hann segir að fátt hafi verið um svör hjá Ingimar Jónssyni, forstjóra Pennans, um þá ákvörðun að endursenda bækurnar.
„Aðgerð Pennans sýnist því ætlað að stilla Uglu upp við vegg: Annað hvort hættir hún að gefa út nýjar bækur sem hljóðbækur til sölu hjá Storytel eða hún verður knésett. Jafnframt sýnist Uglu ætlað að vera víti til varnaðar fyrir aðra bókaútgefendur: Nú sjáið þið hvernig fer fyrir ykkur ef þið vogið ykkur að gera hljóðbækur úr nýútkomnum bókum og hafa þær til sölu hjá Storytel!“
Jakob segist í færslu sinni binda vonir við að Samkeppniseftirlitið taki málið til skoðunar, en óttast að lenda undir í baráttunni enda Penninn stórt fyrirtæki.
„Frjáls markaður og heilbrigð samkeppni þrífst ekki nema með skýrum reglum og öflugu eftirliti. En taki Samkeppniseftirlitið málið til skoðunar kann það að taka langan tíma. Á meðan blæðir Uglu út. Penninn er fyrirtæki sem velti yfir 5 milljörðum á síðasta ári og getur því auðveldlega staðið af sér hugsanlegar sektargreiðslur og finnst það kannski tilvinnandi til að koma þeim skilaboðum til allra bókaútgefenda á Íslandi að setja ekki nýjar bækur í streymi hjá Storytel. Viðskipti Uglu við Pennann skipta litlu máli í 5 milljarða dæmi Pennans, en þau skipta hins vegar öllu máli fyrir litlu Uglu.“
Leiðir ekki til dvínandi sölu
Jakob birtir með færslu sinni afrit af tölvupósti sem hann sendi Ingimar þann 11. maí síðastliðinn. Hann segir að ekkert svar hafi borist en endursendingar frá Pennanum hrannast upp næstu daga.
Jakob klórar sér í kollinum yfir þessu framferði enda telur hann að hljóðbókastreymið hafi lítil sem engin áhrif á bókamarkaðinn.
„Það er alls ekki reynsla mín að hljóðbókastreymið leiði til dvínandi sölu á prentuðu bókinni. Þeir sem hlusta mest á hljóðbækur gera það meðfram öðrum athöfnum, þ.e. á hlaupum, á gangi, í líkamsrækt, jafnvel í sundi, við akstur, við margvíslega líkamlega vinnu og undir svefn, auk þess sem fólk sem á við sjón- og lestrarörðugleika af ýmsu tagi að stríða tekur hljóðbókinni fagnandi. Sú tækninýjung sem felst í starfsemi streymisveitna er því leið til að stækka bókamarkaðinn og gera útgefendum kleift að ná til stærri og breiðari kaupendahóps með vöru sína. Það hlýtur að vera skýlaus réttur minn sem útgefanda að færa mér í nyt tækninýjungar til að koma útgáfubókum Uglu á framfæri við sem flesta og sömuleiðis að skipta við hvern þann smásala sem mér hugnast,“ segir hann.
Aðför Pennans að Uglu Morgunblaðið birtir í dag frétt um að Penninn Eymundsson hafi tekið úr sölu allar „nýjar og...
Posted by Jakob F. Ásgeirsson on Þriðjudagur, 9. júní 2020