Jakob hvetur RÚV til að breyta siðareglum: „Þetta stenst enga skoðun“

„Árum saman hef ég reynt að benda á að þetta ákvæði í siðareglum RÚV er algerlega galið; vanhugsað og galopnar dyr fyrir svona vitleysu.“

Þetta segir hinn þaulreyndi blaðamaður Jakob Bjarnar Grétarsson um kæru Samherja á hendur ellefu starfsmönnum RÚV. Eins og Hringbraut greindi frá í morgun hefur lögmaður Samherja lagt fram kæru til siðanefndar RÚV vegna ummæla umræddra starfsmanna um málefni Samherja á samfélagsmiðlum.

Í kærunni er vísað í siðareglur RÚV þar sem segir:

„Starfs­fólk, sem sinnir um­fjöllun um fréttir, frétta­tengt efni og dag­skrár­gerð tekur ekki opin­ber­lega af­stöðu í um­ræðu um pólitísk mál­efni eða um­deild mál í þjóð­fé­lags­um­ræðunni, þ. á m. á sam­fé­lags­miðlum.“

Jakob tjáir sig um málið í Facebook-hópnum Fjölmiðlanördar þar sem hann segir að þetta ákvæði stangist sennilega á við stjórnarskrárvarinn rétt einstaklinga til tjáningar.

„En látum það vera. Verst er að þetta elur á allskyns ranghugmyndum um blaðamennsku. Sem hlýtur að vera ábyrgðarhluti þegar ríkisstofnun á í hlut. Ef umræða um fréttaflutning á að vera vitræn verður að finna gagnrýninni stað í fréttinni sjálfri. Gera verður skýran greinarmun á Jóni Jóns á Fb og Jóni blaða- og fréttamanni á ritstjórn. Annað er ávísun á endaleysu og rugl. Nóg er nú samt. Breytiði þessu kjánalega ákvæði strax, RÚV-arar. Þetta stenst enga skoðun,“ segir hann.

Undir þetta taka meðal annarra Illugi Jökulsson fjölmiðlamaður og Mörður Árnason sem á sæti í stjórn RÚV.

Jakob bætir um betur og segir að umrætt ákvæði í siðareglum RÚV sé ágætt dæmi um þann vanda sem er við að eiga innan blaðamannastéttarinnar.

„Sem snýst um að blaðamenn sumir hverjir vilja halda í löngu liðna tíð. Að blaðamenn séu svipuð stétt og prestar eða kennarar (eins og var) og að þeir séu svona virðulegir og starfið háleitt — þeir vilja geta fundið til sín. Þá kemur upp svona vanhugsuð vitleysa í einhverju hópefli fólks sem velst til nefndarsetu. Miðlun upplýsinga er alveg nógu mikilvæg þó ekki sé verið að smyrja einhverju slíku ofan á.“