Blaðamaðurinn Jakob Bjarnar Grétarsson virðist vera yfir sig hrifinn af ákveðinni þáttaseríu á Netflix og fjallar um það í færslu sem birtist á Facebook.
Umrædd sería ber nafnið Making a Murderer, og er heimildaþáttasería um sakamál í Wisconsin-fylki Bandaríkjanna.
„Heimskan og illskan eru systur. Horfði loks á Making a Murderer og er í hálfgerðu sjokki. Langt er síðan ég gerði mér grein fyrir því að kerfið er fullkomlega firrt og ver sig af fádæma hörku og ófyrirleitni.“
Þetta skrifar Jakob, en þó atburðir seríunnar gerist í Bandaríkjunum telur Jakob erfitt að áætla að þeir myndu ekki eiga sér stað hér á landi líka.
„En í þessari þáttaröð er sú úrkynjun, þar sem hræddir hryggleysingjar fara með himinskautum í heimsku sinni í vernduðu umhverfi, dregin upp skýrum dráttum. Þó þetta sé í USA er engin ástæða til að ætla að þessi sömu lögmál séu ekki einmitt einnig að verki hér á landi líka. Kerfið var hugsað fyrir almenning en langt er síðan það snerist á haus.“