Tónlistarmaðurinn Jakob Frímann Magnússon mun leiða lista Flokks fólksins í Norðausturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar. Jakob var í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun þar sem hann fór yfir sín helstu baráttumál.
Eins og kunnugt er hafa málefni fátækra verið í brennidepli hjá Flokki fólksins frá stofnun hans. Í viðtalinu talaði Jakob vel um formanninn, Ingu Sæland, sem hann sagði ofboðslega einbeitta. Þá hefði hún upplifað á eigin skinni hvernig það er að glíma við sárafátækt á miðjum aldri.
Jakob sagði að þessi baráttumál Ingu Sæland og Flokks fólksins yrðu áfram sett á oddinn. Þá nefndi hann sérstaklega skattaumhverfið hér á landi og gagnrýndi þá okurstefnu sem ríkir í sumum málaflokkum þegar skattar eru annars vegar.
„Við hvert fótmál ertu skattaður, bensínlítrinn fer 70% til ríkisins, bjórlítrinn sömuleiðis. Þetta er allt svo ofboðslega mikið okur ríkisins, uppsafnað á 70 árum. Þessu okri þarf að linna, þetta er okur á þegnunum og við þurfum bara að stemma þetta niður. Það er nóg til, það þarf bara að skipta því rétt,“ sagði hann.
Þegar hann var spurður hvaðan peningarnir ættu að koma sagðist Jakob vilja nefna eitt í kjölfar bankahrunsins sem væri ekki endilega á allra vitorði.
„Hér fundust í bönkunum á sjöunda hundrað milljarða sem allt í einu duttu inn. Ekki var því skilað til fólksins sem tapaði öllu sínu í hruninu,“ sagði hann og bætti við að það hefði verið hægur leikur að fínstilla kerfið svo peningarnir kæmu fólkinu til góða.
Flokkur fólksins hefur verið í ákveðnum vandræðum samkvæmt skoðanakönnunum að undanförnu, en í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup mælist fylgi hans fjögur prósent. Það myndi ekki duga til að koma manni inn á þing.