Jakob Frímann sendir ákall: „Sorglegt hve margir á Íslandi búa við sára fátækt“

Jakob Frímann Magnússon, þingmaður Flokks fólksins, segir að á meðan unnið er í makindum að myndun nýrrar ríkisstjórnar bíði hinir verst settu í samfélaginu í ofvæni eftir réttlætinu.

„Það er sorglegt hve margir á Íslandi búa við sára fátækt. Þeirra á meðal er gamalt fólk sem er nauðugur einn kostur að velja á milli þess hvort það kaupir sér mat eða lífsnauðsynleg lyf, einstæðir foreldrar sem þurfa að vega og meta hvort þeir hafa efni á því að greiða orkureikninginn eða fara til tannlæknis og veikt fólk sem missir smám saman alla von í því kviksyndi fátæktarinnar sem íslenska kerfið er,“ segir Jakob Frímann í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag.

Jakob bendir einnig á að fórnarlömb fátæktar séu líka börn sem hafa ekki fjárhagslegan stuðning foreldra til þess að stunda íþróttir eða sinna öðrum áhugamálum. Áætlað sé að 10% íslenskra barna búi á heimilum þar sem tekjur eru undir lágtekju­mörkum.

„Flokkur fólksins telur það eðlilega kröfu að lágmarksframfærsla sé 350.000 krónur á mánuði, skatta- og skerðingalaust. Sem dæmi má nefna að neysluviðmið umboðsmanns skuldara gerir ráð fyrir því að barnlaus einstaklingur þurfi 180.000 kr. á mánuði til að greiða fyrir helstu grunnþarfir og að undanskildum húsnæðiskostnaði.“

Jakob segir að ef gert sé ráð fyrir hóflegum húsnæðiskostnaði og einnig tengdum útgjöldum, rafmagni, hita, hússjóði og tryggingum, megi áætla að það þurfi að minnsta kosti 300.000 krónur í ráðstöfunartekjur til að ná endum saman. Slíkar tekjur dugi samt ekki til að mæta óvæntum útgjöldum. Því sé nauðsynlegt að tryggja fólki 350.000 krónur lágmarksframfærslu.

„Þau Katrín, Bjarni og Sigurður Ingi hljóta að taka undir kröfur Flokks fólksins um mannsæmandi kjör allra Íslendinga. Framsókn boðaði heildarendurskoðun á málefnum öryrkja og eldri borgara í aðdraganda kosninganna og formaður VG sagði á sínum tíma: „Stjórnvöld eiga ekki að biðja fátækt fólk á Íslandi að bíða eftir réttlætinu.“ Formaður Sjálfstæðisflokksins tók undir það í umræðum á Alþingi síðasta vor að það væru „alltof margir sem ekki ná endum saman í íslensku samfélagi“.“

Jakob Frímann endar grein sína á þessum orðum:

„Ég vona innilega að þessir ágætu flokksleiðtogar komi til liðs við Flokk fólksins og setji það í forgang að frelsa tugþúsundir landsmanna úr fjötrum fátæktar.“