Jakob Frímann Magnússon, þingmaður Flokk fólksins, vill efla varnir Íslands til að koma í veg fyrir möguleg hryðjuverk á innviðum landsins. Þetta sagði Jakob á Alþingi rétt í þessu en hann vill að Íslendingar fari í njósnastarfsemi til að tryggja öryggi sitt.
Jakob hóf ræðu sína að rifja upp Vilhjálm Stefánsson sem var ættaður af Klungubrekku á Snæfellsnesi en Vilhjálmur átti eftir að sýna djörfung og dug er varðar njósnir á stríðstímum.
„Þessi ágæti maður sem ólst nú upp í Kanada í Winnepeg er maðurinn sem að skáldsagnapersónan James Bond er byggð á,“ sagði Jakob á Alþingi.
„Ég nefni þetta í ljósi þess að gamla herraþjóðin okkar varð fyrir því fyrir nokkrum dögum að gaspípur þar hafa verið sprengdar á hafsbotni. Ég læt mig málið varða sérstaklega þar sem dóttir mín og synir hennar búa þarna rétt hjá og þeir sem eru þarna á bátum eða skipum eiga í hættu á að sökkva. Þar sem gasið blandast sjónum“
„En líka í ljósi þess sem var að forsíðu Morgunblaðsins í síðustu viku um einhverra manna áætlunargerð um að sprengja okkur í loftu upp sem að hér störfum og sömuleiðis í lögreglusveitinni.“
„Ég held við eigum að beina því til utanríkisráðuneytisins þar sem að varnamálin eru vistuð og kannski til fleiri stofnanna sem hér eru okkur til atfylgis og trausts, að við þurfum að efla mjög verulega þar sem að Vilhjálmur Stefánsson fékkst við, í því að kanna hvort að ógnir stafa af því á hafsbotni að hér væri hægt að lama innviði á mjög skömmum tíma.“
„Við erum ansi berskjölduð miðað við aðrar þjóðir og við treystum á NATÓ og treystum á atfylgi þeirra sem vilja okkur vel en ég held það myndi efla sálu og heilsu bæði landsmanna og þeirra sem láta Ísland sig varða ef við kæmum okkur upp sterkari vörnum í þessu. Á þessum vettvangi eru stríðin háð ekki síður en með skriðdrekum á jörðu,“ sagði Jakob Frímann að lokum.